6. fundur
6. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
21.06.2023
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ
Umræður um vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ. Minnispunktar sviðsstjóra lagðir fram til umræðu.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir vinnu við gerð minnisblaðs um framtíðarsýn vinnu og virkni fyrir fatlað fólk í Garðabæ þar sem áhersla verði lögð á að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og annarra með skerta starfsgetu. Sviðsstjóri kynnti megininntak verkefnisins, sem byggir m.a. á niðurstöðum skýrslu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2022 um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030, sem kynnt var á fundi fjölskylduráðs 16. nóvember sl.
Stefnt er að því að fullunnið minnisblað, þ.m.t. frumkostnaðargreining, verði lagt fram á fundi fjölskylduráðs í haust. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi sat fundinn undir þessum lið.
02
Stuðningsfjölskylda
Mál nr. 2206271, synjun afgreiðslufunds stuðnings- og stoðþjónustu áfrýjað til fjölskylduráðs.
Tekið fyrir mál nr. 2206271, áfrýjun synjunar afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu. Fjölskylduráð staðfestir niðurstöðu fjölskyldusviðs. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkur fyrir heimilislausa
Samkomulag um breytingar á samningi um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkur fyrir heimilislausa lagt fram til kynningar.
Samkomulag dags. 24.04.2023 um breytingar á samningi dags. 25.01.2019, sbr. einnig viðauka frá 14.08.2019, milli Garðabæjar og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar, lagt fram til kynningar.
04
Endurskoðun og samræming húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ 2023
Tillögur að endurskoðun og samræming húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ 2023 lagðar fram. Núverandi verklagi við ákvörðun á fjárhæð húsaleigu félagslegra leiguíbúða sem eru teknar til notkunar er ábótavant með tilliti til janfræðissjónarmiða. Starfsfólk fjölskyldusviðs hefur unnið að því að móta tillögur að settum reglum sem yrði beitt við útreikning á húsaleigu allra almennra félagslegra leiguíbúða í sveitarfélaginu. Við þessa vinnu var litið til útreiknings nágrannasveitarfélaga á húsaleigu félagslegra leiguíbúða. Starfsmenn fjölskyldusviðs leggja fyrir ráðið fyrstu drög að tveimur tillögum við útfærslu endurskoðunarinnar.
Fyrir fundinum lá tillaga fjölskyldusviðs að endurskoðun og samræmingu húsaleigu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ 2023. Tillagan snýr að reglum til útreiknings á húsaleigu allra almennra félagslegra leiguíbúða í sveitarfélaginu. Við vinnu fjölskyldusviðs var horft til framkvæmdar Mosfellsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar og Kópavogsbæjar um útreikning á húsaleigu félagslegra leiguíbúða.
Fjölskylduráð fellst á tillögu fjölskyldusviðs um útreikning leiguverðs í félagslegu húsnæði þar sem miðað er við ákveðið fastagjald á íbúð, kr. 70.000 auk fermetraverðs, kr. 1.100 og telur að tillagan feli í sér aukið jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur félagslegs leiguhúnæðis í Garðabæ. Báðar fjárhæðir skulu taka mið af breytingum á vísitölu neysluverðs. Fjölskylduráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.
05
Gott að eldast - aðgerðaáætlun
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum þar sem auglýst er eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Umsóknarfrestur er til 1. september 2023.
Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í fjölskylduráði.
Fyrir fundinum lá tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti varðandi þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum þar sem auglýst er eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættinguna.
Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í fjölskylduráði. Fjölskyldusvið vinnur að gerð minnisblaðs um mögulega þátttöku Garðabæjar í þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Stefnt er að því að minnisblaðið liggi fyrir í haust.
06
Beiðni um endurnýjun húsaleigusamnings
Mál nr. 2305152, beiðni um undanþágu frá reglum Garðabæjar um félagslegt húsnæði lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið fyrir mál nr. 2305152, beiðni um undanþágu frá reglum Garðabæjar um félagslegt húsnæði. Fjölskylduráð staðfestir niðurstöðu fjölskyldusviðs.
Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.