Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi útgáfu byggingarleyfis vegna viðbyggingar að Bakkaflöt 5.
Málsnúmer 2306048
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
37. (2090). fundur
Í úrskurðarorði kemur fram að hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Garðabæ um að samþykkja byggingarleyfi fyrir Bakkaflöt 5.
Bæjarráð Garðabæjar
02
25. (2078). fundur
Í niðurstöðu úrskurðarins kemur fram að kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda er hafnað en jafnframt er tekið fram að framkvæmdaraðli beri áhættu af úrslitum kærumálsins kjósi hann að halda framkvæmdum áfram áður en endanleg niðurstaða málsins liggi fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
03
24. (2077). fundur
Í kærunni var gerð krafa um stöðvun framkvæmda og hefur af hálfu bæjarins verið brugðist við þeim þætti málsins. Ívari Pálssyni, lögmanni hefur verið falið að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.