Beint í efni

37. (2090). fundur

03.10.2023
Bæjarráð Garðabæjar

37. (2090). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.10.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2308340

01

Tinnuvellir 11a - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Veitum ohf., kt. 501213-1870, leyfi til að byggja dreifistöð fyrir raforku á lóðinni við Tinnuvelli 11a.

Málsnúmer 2309689

02

Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, dags. 29.09.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2309692

03

Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028, 182. mál, dags. 29.09.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2307059

04

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi útgáfu á byggingarleyfi fyrir bílskúr að Aratúni 36.

Í úrskurðarorði kemur fram að hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Garðabæ um að samþykkja byggingarleyfi fyrir bílskúr á lóðinni Aratúni 36.

Málsnúmer 2306048

05

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi útgáfu byggingarleyfis vegna viðbyggingar að Bakkaflöt 5.

Í úrskurðarorði kemur fram að hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Garðabæ um að samþykkja byggingarleyfi fyrir Bakkaflöt 5.

Málsnúmer 2309626

06

Bréf umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis varðandi uppbyggingu innviða fyrir orkuskipti, dags. 26.09.23.

Lagt fram bréf umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis þar sem sveitarfélög eru hvött til að huga að staðarvali innviða fyrir orkuskipti ásamt því að vinna að gerð orkuskiptaáætlunar sem geti verið leiðarljós við skipulagsvinnu.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd og umhverfisnefnd

Málsnúmer 1808087

07

Drög að samkomulagi Garðabæjar og ÍAV varðandi uppgjör vegna verksamnings um framkvæmdir við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir drögum að samkomulagi við ÍAV um uppgjör vegna framkvæmda við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Garðabær greiði ÍAV 55,0 mkr. og er um lúkningu að ræða á öllum kröfum sem tengjast fjárhagslegu uppgjöri verksamnings aðila.

Í drögunum er jafnframt kveðið á um kostnaðarskiptingu vegna endurbóta á frárennsli sem tengist jarðsigi og endurskoðun hönnunar íþróttagólfs (gervigras).

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við ÍAV varðandi uppgjör vegna verksamnings um framkvæmdir við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð.

Málsnúmer 2308379

08

Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi samkomulag við Rauða krossinn um neyðaraðstoð við fólk sem fengið hefur endanlega synjun um vernd, dags. 17.09.23.

Lögð fram tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur gert samkomulag við Rauða krossinn á Íslandi um tímabundið verkefni sem felur í sér neyðaraðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á aðstoð á grundvelli laga um útlendinga.

Jafnframt lögð fram tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem lýst er yfir vonbrigðum með einhliða aðgerð félags- og vinnumarkaðsráðherra enda var hún tekin með fullri vitneskju ráðherra um algjöra andstöðu sveitarfélaga við þessa ráðstöfun.

Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar sambandsins frá fundi 8. september sl. þar sem fram kemur sú afstaða að sveitarfélögum sé hvorki heimilt né skylt að veita þeim erlendu ríkisborgurum fjárhagsaðstoð, sem vísað hefur verið úr þjónustu ríkisins í kjölfar synjunar á umsókn viðkomandi um alþjóðlega vernd skv. útlendingalögum.

Málsnúmer 2309674

09

Drög að samningi við Rannsóknir og greiningu varðandi framkvæmd kannana meðal grunnskólanema Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir samning við Rannsóknir og greiningu varðandi framkvæmd kannana meðal grunnskólanema Garðabæjar. Samningurinn gildir fyrir árin 2023 og 2024 og er árleg samningsfjárhæð kr. 1.410.000.

Málsnúmer 2304477

10

Úthlutun og sala lóða - staða mála.

Lagt fram yfirlit í vinnslu um stöðu úthlutunar og sölu lóða í eigu Garðabæjar ásamt því að gerð er grein fyrir uppbyggingu á svæðum í einkaeigu.

Bæjarráð samþykkir að lóðir í 2. áfanga norðurhluta Hnoðraholts verði auglýstar til úthlutunar þegar tillaga að breytingu á deiliskipulagi hefur fengið afgreiðslu í bæjarstjórn. Úthlutunar- og söluskilmálar verða lagðir fram til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir að einbýlishúsalóðir í Prýðahverfi og parhúslóðir í Kumlamýri verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs.

Málsnúmer 2308537

11

Málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi samþykkt að bókun.

„Á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn var 20. september sl. gerði innviðarráherra grein fyrir að lagt hefur verið fram frumvarp um heildarendurskoðun á jöfnunarsjóði sem væri ætlað að búa til einfaldara og sanngjarnara kerfi. Fjallaði ráðherra sérstaklega um nýtt ákvæði í frumvarpinu sem kveður á um að skerða skuli framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga sem ekki fullnýta útsvar sitt.

Í því sambandi telur bæjarráð rétt að árétta eftirfarandi. Sveitarfélögum er tryggt sjálfstæði í sínum málum, þ.m.t. varðandi álagningu útsvars og því óeðlilegt að reglur Jöfnunarsjóðs séu með þeim hætti að þær þvingi sveitarfélög til að leggja á íbúa sína hærra útsvar. Álagt útsvar hefur engin áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvarstekjum sem íbúar einstakra sveitarfélaga greiða og er því ekki hægt að halda því fram að tekjuminni sveitarfélög niðurgreiði útsvar fyrir aðra. M.ö.o. hefði hækkun útsvars í Garðabæ engin áhrif á tekjur Jöfnunarsjóðs eða stöðu annarra sveitarfélaga.

Í allri umræðu um Jöfnunarsjóð er nauðsynlegt að minna á að hlutdeild sjóðsins í útsvarstekjum er nýtt til framlaga til grunnskóla og málefna fatlaðs fólks sem áður voru á hendi ríkisins. Gera verður þá kröfu að skipting þeirra fjármuna milli sveitarfélaga fari fram með hlutlægum hætti hér eftir sem hingað til.“

Bæjarráð samþykkir framkomna bókun með fjórum atkvæðum.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins

Sara Dögg Svanhildardóttir, stendur ekki að samþykkt að bókun um málið og tekur fram að afstaða Viðreisnar til málsins er skýr.