Beint í efni

Málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Málsnúmer 2308537

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

37. (2090). fundur

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi samþykkt að bókun.

„Á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn var 20. september sl. gerði innviðarráherra grein fyrir að lagt hefur verið fram frumvarp um heildarendurskoðun á jöfnunarsjóði sem væri ætlað að búa til einfaldara og sanngjarnara kerfi. Fjallaði ráðherra sérstaklega um nýtt ákvæði í frumvarpinu sem kveður á um að skerða skuli framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga sem ekki fullnýta útsvar sitt.

Í því sambandi telur bæjarráð rétt að árétta eftirfarandi. Sveitarfélögum er tryggt sjálfstæði í sínum málum, þ.m.t. varðandi álagningu útsvars og því óeðlilegt að reglur Jöfnunarsjóðs séu með þeim hætti að þær þvingi sveitarfélög til að leggja á íbúa sína hærra útsvar. Álagt útsvar hefur engin áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvarstekjum sem íbúar einstakra sveitarfélaga greiða og er því ekki hægt að halda því fram að tekjuminni sveitarfélög niðurgreiði útsvar fyrir aðra. M.ö.o. hefði hækkun útsvars í Garðabæ engin áhrif á tekjur Jöfnunarsjóðs eða stöðu annarra sveitarfélaga.

Í allri umræðu um Jöfnunarsjóð er nauðsynlegt að minna á að hlutdeild sjóðsins í útsvarstekjum er nýtt til framlaga til grunnskóla og málefna fatlaðs fólks sem áður voru á hendi ríkisins. Gera verður þá kröfu að skipting þeirra fjármuna milli sveitarfélaga fari fram með hlutlægum hætti hér eftir sem hingað til.“

Bæjarráð samþykkir framkomna bókun með fjórum atkvæðum.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins

Sara Dögg Svanhildardóttir, stendur ekki að samþykkt að bókun um málið og tekur fram að afstaða Viðreisnar til málsins er skýr.

Bæjarráð Garðabæjar

02

36. (2089). fundur

Lögð fram ársskýrslu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2022 ásamt tilkynningu ráðuneytisins um ársfund sjóðsins sem haldinn var 20. september 2023.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir framlögum til sjóðsins og ráðstöfun þeirra til einstakra málaflokka.

Bæjarráð samþykkir að taka málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs og er bæjarstjóra falið að vinna að gerð ályktunar um málið.

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (2087). fundur

Lagt fram bréf innviðaráðuneytis varðandi boð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem verður haldinn kl. 16:00, miðvikudaginn 20. september 2023 á Hilton Reykjavík.