Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi samkomulag við Rauða krossinn um neyðaraðstoð við fólk sem fengið hefur endanlega synjun um vernd, dags. 17.09.23.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
37. (2090). fundur
Lögð fram tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur gert samkomulag við Rauða krossinn á Íslandi um tímabundið verkefni sem felur í sér neyðaraðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á aðstoð á grundvelli laga um útlendinga.
Jafnframt lögð fram tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem lýst er yfir vonbrigðum með einhliða aðgerð félags- og vinnumarkaðsráðherra enda var hún tekin með fullri vitneskju ráðherra um algjöra andstöðu sveitarfélaga við þessa ráðstöfun.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar sambandsins frá fundi 8. september sl. þar sem fram kemur sú afstaða að sveitarfélögum sé hvorki heimilt né skylt að veita þeim erlendu ríkisborgurum fjárhagsaðstoð, sem vísað hefur verið úr þjónustu ríkisins í kjölfar synjunar á umsókn viðkomandi um alþjóðlega vernd skv. útlendingalögum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (2084). fundur
Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skv. 15. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, dags. 16. ágúst 2023. Jafnframt lögð fram tilkynning forsætisráðuneytisins varðandi álitsgerð Lagastofnunar um samspil 33. gr. laga nr.80/2016 um útlendinga og 15. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, dags. 17. ágúst 2023.