31. (2084). fundur
31. (2084). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
22.08.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2206112
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2023 - viðauki nr. 1.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1
Fjölskyldusvið:
NPA samningar ? hækkun taxta.
Vegna hækkunar á töxtum NPA (notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar) kemur til hækkunar á fjárframlögum til einstaklinga sem eru með NPA samninga.
Hækkunin er afturvirk frá 1. nóvember 2022 og nemur 45 millj. kr.
NPA samningar 45.000.000 02530-4993
Fræðslusvið:
Urriðaholtsskóli
Aukið fjárframlag til Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar á nemendum en nemendur er um 320 haustið 2023 og hefur þá fjölgað um 120 frá hausti 2022.
Urriðaholtsskóli 190.000.000 04216 -
Frístund Urriðaholtsskóla
Aukið fjárframlag til frístundar vegna fjölgunar nemenda.
Frístund Urriðaholtsskóla 40.000.000 04287 -
Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla - ný deild
Frá og með skólaárinu 2023 til 2024 er gert ráð fyrir nýrri deild við skólann, félagsmiðstöð. Frá sama tíma hættir félagsmiðstöðin Klakinn í Sjálandsskóla að sjá um þá þjónustu við skólann.
Félagsmiðstöð Urriðaholtsskóla 9.000.000
Leikskóladeild Sjálandsskóla - ný deild
Ný leikskóladeild með um 25 fimm ára börnum hefur tekið til starfa við Sjálandsskóla frá og með ágúst 2023.
Leikskóladeild Sjálandsskóla 30.000.000 4124-
Garðahraun - frístundastarf
Aukið fjárframlag til Garðahrauns vegna fjölgunar á nemendum.
Garðahraun 26.000.000 04288 -
Samtals útgjaldaauki 340.000.000
Útgjaldaauka er mætt með eftirfarandi hækkun á skatttekjum:
Fasteignaskattur -24.000.000 00060 -0011
Jöfnunarsjóður -241.000.000 00100 -0148
Lóðarleiga -8.000.000 00350 - 0310
Staðgreiðsla útsvars -67.000.000 00010 -0021
Samtals -340.000.000
Málsnúmer 2210617
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði við Gilsbúð 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á efri hæð atvinnuhúsnæðisins við Gilsbúð 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust tvær athugasemdir varðandi hækkun á hæð hússins, útsýnisskerðingu og ónæði frá bifreiðastæðum í götu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og tryggt er að hæð hússins er ekki umfram heimildir í gildandi skilmálum. Fundað hefur verið með eigendum húsnæðisins varðandi lausnir til að starfsmenn geti lagt bifreiðum sínum innan lóðar en með því er dregið úr óþægindum vegna notkunar starfsmanna á bifreiðastæðum í götunni.
Málsnúmer 2306583
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðarinnar við Heiðarlund 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis. Um er að ræða stækkun byggingarreits fyrir opið bílskýli og að núverandi bílskúr verði fyrir eina bifreið í stað tveggja áður. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Heiðarlundar 6, 9, 11, 13, 15, 17 og 18.
Málsnúmer 2307075
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um stofnun lóðar fyrir smádreifistöð rafmagns vegna uppsetningar hraðhleðslustöðva á lóð Olís við Hafnarfjarðarveg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um stofnun lóðar fyrir smádreifistöð á vegum Veitna ohf. við suðvesturhorn lóðarmarka lóðar Olís við Hafnarfjarðaveg. Koma þarf fram á mæliblaði og í lóðarleigusamningi að ekki sé gert ráð fyrir lóðinni í skipulagi og að byggingarleyfi verði veitt með þeim fyrirvara að lóðin og mannvirki á lóð séu víkjandi.
Málsnúmer 2302427
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði 3) vegna lóðarinnar við Litlatún 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði 3) er varðar lóðina við Litlatún 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir spennustöð sem geti verið allt að 15 fm að stærð og 3 m að hæð í suðausturhluta lóðarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.
Málsnúmer 2306144
06
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi verkefnið íþróttir fyrir alla.
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráð að veita styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 til verkefnisins íþróttir fyrir alla. Um er að ræða verkefni á vegum Ungmennafélags Stjörnunnar og Ungmennafélags Álftaness í samstarfi við Íþróttafélagið Ösp með það að markmiði að bjóða upp á fjölbreyttar æfingar fyrir allan aldur óháð fötlun.
Bæjarráð lýsir sérstakri ánægju með verkefnið og felur fræðslu og menningarsviði að ræða við forráðmenn þess og bjóða samvinnu til að tryggja sjálfbærni og þróun verkefnisins til lengri tíma.
Málsnúmer 2304477
07
Staða úthlutunar og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.
Bæjarritari fór yfir stöðu á úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti. Tilboðsgjafar hafa verið að vinna að skjalagerð og framgangi fjármögnunar vegna greiðslu á byggingarréttargjaldi.
Málsnúmer 2302685
08
Innritun í leikskóla 2023
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir stöðu innritunar í leikskóla haustið 2023.
Lagt fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 21. ágúst 2023.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2308250
09
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni listahátíðar á Garðatorgi.
Lögð fram umsókn menningar- og safnanefndar Garðabæjar um tímabundið áfengisleyfi á listahátíð Rökkvunnar, frá kl. 17:00-23:00, dagana 29. september og 30. september 2023. Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2105560
10
Tilkynning frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi undirritun loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.
Lögð fram tilkynning frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi undirritun loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið. Með stefnunni vilja sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu leggja sitt að mörkun með innleiðingu markvissra aðgerða sem stuðla að kolefnishlutleysi höfuðborgarsvæðisins.
Málsnúmer 2304477
11
Bréf Klettáss ehf. og GG verks ehf. varðandi greiðsludreifingu á byggingarréttargjaldi lóða á Hnoðraholti, dags. 16.08.23.
Í bréfinu er farið fram á frestun á greiðslu hluta byggingarréttargjalda þar til teikningar hafa verið samþykktar en að hámarki í eitt ár.
Bæjarráð telur að ekki geti komið til frestunar á hluta byggingarréttargjalds eins og farið er frá á í bréfinu þar sem það er ekki í samræmi við greiðsluskilmála í auglýstum úthlutunar- og söluskilmálum. Bæjarráð leggur áherslu á að gætt sé jafnræðis meðal bjóðenda og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara varðandi mögulegan greiðslufrest vegna skjalagerðar og frágangs á fjármögnun hjá bönkum.
Málsnúmer 2308379
12
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, dags. 16.08.23.
Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skv. 15. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, dags. 16. ágúst 2023. Jafnframt lögð fram tilkynning forsætisráðuneytisins varðandi álitsgerð Lagastofnunar um samspil 33. gr. laga nr.80/2016 um útlendinga og 15. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, dags. 17. ágúst 2023.
Málsnúmer 2308224
13
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á ákvörðum Garðabæjar um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 (leikskóli), dags. 14.08.23.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2212136
14
Staða framkvæmda og viðhald á skólahúsnæði - skoðunarferð í skólana.
Farið var í skoðunarferð í eftirfarandi skóla til að skoða aðstæður og framkvæmdir sem unnið hefur verið að í sumar við viðhald á húsnæði skólanna.
Hofsstaðaskóli, Flataskóli, Garðaskóli og Álftanesskóli.