Beint í efni

Innritun í leikskóla 2023

Málsnúmer 2302685

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Lagðar fram upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.

Lagðar fram upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (2084). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir stöðu innritunar í leikskóla haustið 2023.

Lagt fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 21. ágúst 2023.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Kynning á stöðu innritunar í leikskóla

Í leikskólum Garðabæjar eru 1325 börn. Fyrsta úthlutun fyrir skólaárið 2023-24 fór fram í febrúar og fengu öll börn fædd árið 2021 úthlutað plássi í leikskólum Garðabæjar. Í þeirri úthlutun var leitast við að systkini færu í sama leikskóla. Í annarri úthlutun sem var í mars fengu börn sem fædd eru í janúar til júlí árið 2022 úthlutað leikskólaplássum. Í þriðju úthlutun sem fram fer í ágúst næst komandi verður þeim plássum úthlutað sem losna til dæmis vegna flutninga fjölskyldna. Í þeirri úthlutun er stefnt að því að börn fædd í ágúst 2022 fái boð um leikskólapláss en þau börn verða eins árs í sama mánuði.
Með tilkomu nýs leikskóla í Urriðaholti á nýju ári eykst framboð leikskólaplássa í Garðabæ. Þá er áætlað að hægt verði að mæta börnum sem fædd eru seinni hluta árs 2022 og í upphafi árs 2023 og bjóða þeim leikskólavist. Umræður voru um biðlistann og nefnt að hafa meira gegnsæi og aukið upplýsingaflæði til foreldra.