Beint í efni

7. fundur

06.09.2023
Leikskólanefnd Garðabæjar

7. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

06.09.2023

Kl. 16:30 - 17:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Finnur Jónsson - aðalmaður
  • Benedikt D. Valdez Stefánsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Kristín Hemmert Sigurðardóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Guðrún Viktoría Skjaldardóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2212136

01

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Farið yfir verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir og fleira í húsnæði stofnana bæjarins.

Farið yfir verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir og fleira í húsnæði stofnana bæjarins.

Málsnúmer 2302685

02

Innritun í leikskóla 2023

Lagðar fram upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.

Lagðar fram upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.

Málsnúmer 2307086

03

Reglur um styrki til náms í leikskólakennarafræðum og menntunarfræði leikskóla fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar.

Farið yfir breytingar á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum og menntunarfræðum leikskóla fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar.

Málsnúmer 2308375

04

Erindi frá starfsfólki Urriðaholtsskóla

Starfsfólk Urriðaholtsskóla óskar eftir að færa skipulagsdaginn 21. maí fram til 10. maí 2024 vegna námsferðar. Leikskólanefnd samþykkir breytingu á skipulagsdegi en bendir á mikilvægi þess að nýta fyrirfram ákveðna skipulagsdaga fyrir námsferðir.

Málsnúmer 2308630

05

Erindi frá Mánahvoli

Starfsfólk Mánahvols óskar eftir að færa skipulagsdag 17.janúar til 17.maí vegna fyrirhugaðrar námsferðar næsta vor.

Leikskólanefnd samþykkir breytingu á skipulagsdegi en bendir á mikilvægi þess að nýta fyrirfram ákveðna skipulagsdaga fyrir námsferðir.

Málsnúmer 2306230

06

Ársskýrslur leikskóla 2022 - 2023

Lagðar voru fram ársskýrslur leikskólanna vegna skólaársins 2022-2023. Leikskólanefnd færir þakkir til stjórnenda og starfsfólks fyrir faglegar og vel unnar árskýrslur. Þær gefa góða innsýn í starfsemi leikskólanna og það metnaðarfulla starf sem þar fer fram. Ársskýrslurnar eru einnig mikilvæg heimild og tæki til endurmats og stefnumótunar í leikskólastarfi.

Samþykkt tillaga frá leikskólafulltrúa um að stjórnendur riti í upphafi skýrslu samantekt um innihald skýrslunnar.