Heiðarlundur 8 - óveruleg dsk breyting
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem nær til lóðarinnar Heiðarlundur 8. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir opið bílskýli og að núverandi bílskúr verði fyrir eina bifreið í stað tveggja áður.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
11. (926). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðarinnar við Heiðarlund 8. Um er að ræða stækkun byggingarreits fyrir opið bílskýli og að núverandi bílskúr verði fyrir eina bifreið í stað tveggja áður. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Heiðarlundar 6, 9, 11, 13, 15, 17 og 18.“ (Mál nr. 2306583)
Bæjarráð Garðabæjar
04
31. (2084). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis. Um er að ræða stækkun byggingarreits fyrir opið bílskýli og að núverandi bílskúr verði fyrir eina bifreið í stað tveggja áður. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Heiðarlundar 6, 9, 11, 13, 15, 17 og 18.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Lunda sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækki sem nemur opnu bílskýli á núverandi bílastæði og að lokuð bílageymsla verði fyrir einn bíl í stað tveggja. Rúmgott pláss verður fyrir bifreiðar innan lóðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Heiðarlundi 6, 9, 11, 13, 15, 17 og 18.