12. fundur
12. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.10.2023
Kl. 17:00 - 17:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Heiðarlundur 8 - óveruleg dsk breyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem nær til lóðarinnar Heiðarlundur 8. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir opið bílskýli og að núverandi bílskúr verði fyrir eina bifreið í stað tveggja áður.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.og 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
02
Holtstún 16 úr landi Eyvindarstaða - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn landeiganda og húsbyggjanda um framkvæmdaleyfi fyrir kaldavatnslögn að fyrirhuguðu einbýlishúsi að Holtstún 16. Meðfylgjandi er skissa landeigenda að legu lagnar.
Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 veitir skipulagsstjóri leyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við framlagða skissu með þeim fyrirvara að samþykki eigenda Stekks liggi fyrir þar sem að lögn er innan þeirrar landareignar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II (2.gr.h) við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
03
Hönnun - Útboð - Vegamót Garðahraunsvegar og Álftanesvegar
Lögð fram hönnunar og útboðsgögn fyrir breytingar á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar ásamt umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn og 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. Þetta er endurútgefið framkvæmdarleyfi þar sem eldra leyfi var útrúnnið.
04
Sunnuvellir 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram byggingarleyfisuppdrættir ásamt umsögn höfundar deiliskipulags Kjóavalla.
Með vísan í umsögn gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt með tilliti til deiliskipulags.
05
Víðilundur 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð var fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsinu að Víðilundi 9. Deiliskipulagsbreyting hefur verið staðfest sem gerir ráð fyrir breytingunni með stækkun byggingarreits. Uppdráttur gerir ráð fyrir stoðvegg á lóðarmörkum að norðanverðu við gangstíg á milli Víðilundar og Hvannalundar.
Skipulagsstjóri samþykkir gerð veggjarins fyrir hönd Garðabæjar með þeim fyrirvara að gert verði ráð fyrir fallvörnum þar sem stoðveggur er hærri en 80 cm. Fallvörn skal ekki vera lægri en 90 cm ofan á stoðvegg.
06
Sveinskotsvör 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagður fram uppdráttur sem gerir ráð fyrir 130 hárri girðingu að lóðarmörkum að leiksvæði og að göngustíg í landi Garðabæjar. Girðingin samanstendur af 80 cm háum steyptum vegg og 50 cm háum glervegg.
Skipulagsstjóri samþykkir útfærslu girðingar fyrir hönd Garðabæjar.
07
Víðiholt 2, 4, 6, 8, 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir byggingarleyfisumsóknar.
Uppdrættir eru ekki í samræmi við deiliskipulag Víðiholts hvað eftirfarandi atriði varðar:
Breidd svala er 1,7 metrar en skal vera 2 metrar samkvæmt skipulagi.
Svalir eru ekki inndregnar.
Breidd svalarganga er breytileg en skal vera 2 metrar.
Öll ofangreind atriði varða grein 3.7.4 í greinargerð deiliskipulags Víðiholts. Deiliskipulagshöfundur hefur gert grein fyrir því að fyrir mistök þá voru ofangreind atriði í deiliskipulagsgreinargerð ekki löguð að forhönnun hússins eins og fyrirhugað var.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
08
Víðiholt 5, 7, 9, 11, 13 - Umsókn um byggingarleyfi

09
Víðiholt 12, 14, 16, 18, 20 - Umsókn um byggingarleyfi

10
Víðiholt 15, 17, 19 - Umsókn um byggingarleyfi

11
Víðiholt 22, 24 - Umsókn um byggingarleyfi