Beint í efni

Holtstún 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2309110

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

12. fundur

Lögð fram umsókn landeiganda og húsbyggjanda um framkvæmdaleyfi fyrir kaldavatnslögn að fyrirhuguðu einbýlishúsi að Holtstún 16. Meðfylgjandi er skissa landeigenda að legu lagnar.

Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 veitir skipulagsstjóri leyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við framlagða skissu með þeim fyrirvara að samþykki eigenda Stekks liggi fyrir þar sem að lögn er innan þeirrar landareignar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II (2.gr.h) við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Bæjarráð Garðabæjar

05

38. (2091). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sveini Yngva Valgeirssyni, kt. 070887-2909, leyfi til að byggja einbýlishús að Holtstúni 16.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

11. fundur

Lögð fram umsókn landeiganda um byggingarleyfi fyrir 414 m2 einbýlishús milli Stekkjar og Asparvíkur við Bessastaðatjörn. Gólfkóti er 4,2 mys og hámarkshæð í 8,7 mys. Ekkert deiliskipulag hefur verið samþykkt á svæðinu en tillagan er innan landnotkunarreits fyrir íbúðarbyggð í aðalskipulagi. Byggingin er í samræmi við byggðarmynstur innan landnotkunarreitsins.
Umhverfissvið Garðabæjar hefur fundað með Veitum ohf vegna lagnamála og útfærslu þeirra sem tengist fyrirhuguðum framkvæmdum. Skipulagstjóri mælist til þess að lega lagna og útfærsla aðkomu taki tillit til draga deiliskipulagi Norðurness sem nær til þessa svæðis eftir því sem verða má.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur og Tjarnar. Skipulagsstjóri styttir tíma grenndarkynningar þar sem að eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrætti lýst því yfir að þeir gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Skipulasstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir einbýlishúsinu sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn. Byggingarleyfið nær ekki til bátaskýlis sem kemur fram á uppdrætti.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.