Beint í efni

38. (2091). fundur

10.10.2023
Bæjarráð Garðabæjar

38. (2091). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

10.10.2023

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2303053

01

Málefni Sorpu bs.

Á fund bæjarráðs komu Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. og Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu bs. Farið var yfir stöðu mála varðandi urðun í Álfsnesi en heimild til urðunar er til 2030 en magn verður takmarkað miðað við það sem verið hefur áður. Samið hefur verið um útflutning á úrgangi og er áætlað magn 40-50.000 tonn af böggum.

Málsnúmer 2308615

02

Úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar 2023.

Á fund bæjarráðs komu Arnar Pálsson og Þröstur Sigurðsson, ráðgjafar frá ARCUR og gerðu grein fyrir framgangi úttektar á stjórnskipulagi Garðabæjar. Fram kom að ráðgjafar hafa tekið viðtöl við sviðsstjóra og deildarstjóra á fjármála- og stjórnsýslusviði og haldið vinnufund með öllum starfsmönnum. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úttektarinnar geti legið fyrir í lok október.

Málsnúmer 2309110

03

Holtstún 16 úr landi Eyvindarstaða - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sveini Yngva Valgeirssyni, kt. 070887-2909, leyfi til að byggja einbýlishús að Holtstúni 16.

Málsnúmer 2306566

04

Kumlamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Steinþóri Val Ólafssyni, kt. 250660-5889, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 18.

Málsnúmer 2306565

05

Kumlamýri 20- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Pétri Ingasyni, kt. 010764-2899, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 20.

Málsnúmer 2305315

06

Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birni Sigurðssyni, kt. 110580-3209, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 22.

Málsnúmer 2305322

07

Kumlamýri 24 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helga Gunnarssyni, kt. 030880-3749, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 24.

Málsnúmer 2309121

08

Litlatún 3- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410, leyfi að skipta rými 0103 í tvö rými í húsnæði að Litlatúni 3.

Málsnúmer 2310090

09

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun árið 2024, dags. 04.10.23.

Lagt fram bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 ásamt tillögum að gjaldskrám. Áætlað framlag Garðabæjar er kr. 17.615.763.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024 og gjaldskrám heilbrigðiseftirlits til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2310092

10

Tilkynning frá dómsmálaráðuneytinu varðandi greiningu og endurskoðun á almannavarnakerfi landsins, dags. 04.10.23.

Lögð fram tilkynning frá dómsmálaráðuneytinu þar sem fram kemur að framundan er heildstæð greining á íslenska almannavarnakerfinu, helstu kostum þess og göllum. Stefnt er að því að greiningu verði lokið fyrir árslok 2023 og hefst þá vinna við gerð lagafrumvarps.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2310102

11

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi gerð þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélaga, dags. 29.09.23.

Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu þar sem fram kemur að samkvæmt sveitarstjórnarlögum eiga sveitarstjórnir að móta stefnu um þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda upp í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum viðkomandi sveitarfélags.

Málsnúmer 2310065

12

Bréf innviðaráðuneytisins varðandi minningardag um fórnalömb umferðaslysa, dags. 29.09.23.

Lagt fram bréf innviðarráðuneytisins þar sem tilkynnt er um að árlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 19. nóvember 2023.

Fylgiskjöl