Víðiholt 15, 17, 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
40. (2093). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja raðhús með þremur íbúðum á lóðinni að Víðiholti 15 - 19.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
12. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir byggingarleyfisumsóknar.
Uppdrættir eru ekki í samræmi við deiliskipulag Víðiholts hvað eftirfarandi atriði varðar:
Breidd svala er 1,7 metrar en skal vera 2 metrar samkvæmt skipulagi.
Svalir eru ekki inndregnar.
Breidd svalarganga er breytileg en skal vera 2 metrar.
Öll ofangreind atriði varða grein 3.7.4 í greinargerð deiliskipulags Víðiholts. Deiliskipulagshöfundur hefur gert grein fyrir því að fyrir mistök þá voru ofangreind atriði í deiliskipulagsgreinargerð ekki löguð að forhönnun hússins eins og fyrirhugað var.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.