40. (2093). fundur
40. (2093). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
24.10.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027).
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum í vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024. Farið var yfir drög að rekstrarreikningi A og B hluta ásamt sundurliðun skatttekna. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 31. október 2023 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 2. nóvember 2023.
02
Gilsbúð 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sonju ehf., kt. 601173-0189, leyfi til fyrir viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni við Gilsbúð 5.
03
Lyngás 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Katrínu Júlíusdóttur, kt. 231174-3389, leyfi til að stækka þakrými núverandi einbýlishúss að Lyngási 4.
04
Víðiholt 2-10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja raðhús með fimm íbúðum á lóðinni við Víðiholti 2 - 10.
05
Víðiholt 5-13 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja raðhús með fimm íbúðum á lóðinni að Víðiholti 5 - 13.
06
Víðiholt 12-20 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja raðhús með fimm íbúðum á lóðinni að Víðiholti 12 - 20.
07
Víðiholt 15-19 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja raðhús með þremur íbúðum á lóðinni að Víðiholti 15 - 19.
08
Víðiholt 22-24 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Víðiholti 22 - 24.
09
Þórsgrund 2 - Umsókn um byggingarleyfi færanlegar kennslustofur.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alþjóðaskólanum fasteignafélagi ehf., kt. 440222-0990 leyfi fyrir staðsetningu á færanlegum kennslustofum á lóð Þórsmerkur.
10
Tillögur leikskólanefndar varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir tillögur varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar. Tillögurnar voru samþykktar á fundi leikskólanefndar 18. október sl. og vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð lýsir ánægju með framkomnar tillögur og færir þakkir til leikskólanefndar og annarra aðila sem hafa komið að gerð þeirra. Bæjarráð tekur undir meginmarkmið tillagnanna að skapa sveigjanleika í leikskólastarfi með hagsmuni barna og starfsmanna að leiðarljósi.
Bæjarráð vísar tillögunum til fræðslu og menningarsviðs til nánari útfærslu á fjárhagslegum þáttum og til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 7. nóvember nk.
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
11
Minnisblað mannauðsstjóra varðandi stuðning við mannauð Garðabæjar.
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri gerði grein fyrir minnisblaði um hvernig styðja megi betur við mannauð Garðabæjar og gera bæinn þar með að eftirsóknarverðari vinnustað.
Bæjarráð telur mikilvægt að unnið verði að framgangi málsins og vísar minnisblaðinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
12
Úthlutunarskilmálar vegna sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.
Bæjarstjóri kynnti úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða í 2. áfanga á Hnoðraholti
Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða í 2. áfanga á Hnoðraholti og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðirnar.
13
Tilkynning frá umhverfis-, orku- og loflagsráðuneytinu varðandi skýrslu starfshóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum, dags. 17.10.23.
Lögð fram tilkynning frá umhverfis-, orku- og loflagsráðuneytinu þar sem fram kemur að lagðar hafa verið fram niðurstöður starfshóps sem skipaður var til að leggja fyrir nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.
14
Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi ársreikning Garðabæjar árið 2022, dags. 13.10.23.
Lagt fram bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi ársreikning Garðabæjar árið 2022 þar sem bent er á að ekki eru uppfyllt öll lágmarksviðmið vegna rekstrar A-hluta samkvæmt ársreikningi. Í bréfinu kemur jafnframt fram að samkvæmt bráðabirgðaákvæði VII í sveitarstjórnarlögum er heimild til að víkja frá skilyrðum um jafnvægisreglu og skuldareglu út árið 2025.
15
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi ágóðahlutagreiðslu 2023, dags. 13.10.23.
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar fyrir árið 2023 er að fjárhæð kr. 1.810.000.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 314. mál., dags. 18.10.23.
Lagt fram.
17
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi gildistöku reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga, dags. 18.10.23.
Lögð fram.
18
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi þátttöku og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs árið 2024, dags 19.10.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
19
Bréf Aflsins varðandi umsókn um styrk, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.