Beint í efni

Starfsumhverfi í leikskóla í Garðabæ - tillögur að skipulagi

Málsnúmer 2307119

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

25. fundur

Linda Udengard sviðsstjóri fór yfir stöðuna á framkvæmd seinni hluta samþykktra tillagna um starfsumhverfi í leikskólum í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (2125). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti Garðabæjarleiðina - lykiltölur í leikskólamálum.
Helstu niðurstöðu eru:
- 12 mánaða börn frá leikskólapláss í ágúst 2024.
- Betri þjónusta. Deildir loka sjaldnar vegna fáliðunar.
- Börn dvelja skemur á leikskólum. 60% barna dvelja innan við 40 tíma á viku.
- Fjölskyldur hafa meira svigrúm til að sníða vistunartíma að sínum þörfum .
- Dregið hefur úr álagi og veikindum starfsfólks

Frekari reynsla mun komast á aðgerðirnar á næstu mánuðum. Framundan er m.a. að gera viðhorfskönnun meðal foreldra, starfsfólks og stjórnenda.
Hanna Halldóra Leifsdóttir, leikskólafulltrúi, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

16. (931). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá þar sem leikskólagjald verði óbreytt krónutala fyrir 38 klst. á viku miðað við núverandi gjaldskrá. Leikskólagjöld lækka frá og með 37 klst. miðað við núverandi gjaldskrá en hækka fyrir næstu tvær klst. (39 og 40).

Áfram verður hægt að sækja um afslátt sem er tekjutengdur. Í breyttri gjaldskrá er lagt til að viðmiðunartekjur verði annars vegar fyrir einstaklinga/forsjáraðila og hins vegar fyrir sambúðarfólk. Afslátturinn verði miðaðar við heildartekjur heimilis þar sem meðaltekjur einstaklings eru allt að 800.000 á mánuði en sambúðarfólks allt að 980.000 kr. á mánuði en var áður 865.469 kr. fyrir báða hópa. Afslátturinn verður áfram sem nemur 40% af almennu leikskólagjaldi. Systkinaafsláttur verður óbreyttur.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða nýja gjaldskrá leikskóla í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

16. (931). fundur

Forseti bæjarstjórnar tók ákvörðun um að umræða um dagskrárliði 13 og 14 fari fram saman.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum að betra starfsumhverfi í leikskólum. Tillögurnar voru unnar af starfshópi sem skipaður var stjórnendum í leikskólum, leikskólafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Tillögurnar hafa verið til umfjöllunar í leikskólanefnd sem samþykkti þær á fundi sínum 18. október sl. Alls er um að ræða 15 tillögur og er gert ráð fyrir að tillögur 1-11 komi til framkvæmda á vorönn 2024 og á haustönn 2024 verði unnið að aðgerðaráætlun vegna tillagna 12-15 sem vísað verður til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Bæjarstjóri þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi og mótun tillagnanna fyrir þeirra hlut að máli.

Margrét Bjarnadóttir, gerði nánari grein fyrir einstaka tillögum.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls. Þorbjörg lagði til eftirfarandi tillögu um breytingu á texta í kafla um innleiðingu.

Tillögur verða kynntar hagaðilum þegar þær liggja fyrir. Fylgja þarf framkvæmd þeirra eftir með könnunum og framlagningu á tölfræði sem metur árangur fyrir starfsumhverfi leikskólanna en metur einnig áhrif á vinnutíma, tekjur og líðan foreldra. Lögð verður áhersla á gott upplýsingaflæði til starfsfólks leikskóla og foreldra.
Breytingar geta haft mismunandi áhrif á stöðu fjölskyldna og mun fræðslu- og
menningarsvið í samstarfi við leikskólastjóra og félagsþjónustu fylgjast sérstaklega með stöðu ákveðinna hópa og skapa skýran farveg þar sem fólk getur óskað eftir lausn sinna mála ef þörf krefur.

Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Miðað við stöðuna á leikskólum Garðabæjar þarf að grípa, meðal annars, til aðgerða sem eru íþyngjandi fyrir barnafjölskyldur. Þetta er ekki ákjósanleg staða að vera í, en við í Garðabæjarlistanum teljum að þær aðgerðir sem hér eru lagðar til séu vel ígrundaðar í ljósi aðstæðna.
Garðabæjarlistinn leggur höfuðáherslu á stranga eftirfylgni með árangrinum og hvort markmið breytinganna náist. Þá viljum við sjá gagnaöflun um áhrif breytinganna á vinnu, tekjur og streitu foreldra, með sérstakri áherslu á stöðu kvenna innan heimila og aðstæður fjölskyldna í viðkvæmri stöðu. Við viljum einnig að búinn verði til skýr farvegur í kerfinu fyrir þær fjölskyldur sem beinlínis geta ekki mætt skerðingu á hámarks vistunartíma. Fólk þarf að geta fengið úrlausn sinna mála ef brýn þörf er á. Þess vegna leggjum við fram breytingartillögu sem skerpir á þessu tvennu.
Við vonum svo sannarlega að tillögurnar skili tilætluðum árangri: Færri lokunum vegna manneklu, fleira starfsfólki á leikskólunum og þar með öruggari þjónustu fyrir fjölskyldur í bænum.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við í Viðreisn fögnum því sérstaklega að ný gjaldskrá leikskóla verði með óverulegum breytingum fyrir þau sem komast ekki hjá því að nýta 40 klst. vistun á viku.
Það er afar brýnt að mæta þeim hópi sem minnstan sveigjanleikann hefur hvort heldur sem litið er til fjárhagslegrar eða félagslegrar stöðu þegar kemur að þjónustu við foreldra leikskólabarna.“

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls. Almar lagði til að texti í kafla um innleiðingu verði uppfærður í samræmi við tillögu bæjarfulltrúa Þorbjargar.

Margrét Bjarnasóttir, tók til máls. Margrét lagði fram eftirfarandi bókun.

„Leikskólaþjónusta í Garðabæ hefur staðið traustum fótum í gegnum tíðina. Börn komast snemma inn á leikskóla þar sem viðmið er 12 mánaða aldur. Hlutfall fagmenntaðs starfsfólks er hátt og áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun. Þróunarsjóður leikskóla ýtir svo undir metnaðarfullt fagumhverfi.
Á skömmum tíma er orðið ljóst að verja þarf gæðin í þjónustunni. Álag á starfsfólk er mikið, veikindahlutfall hátt og að hluta til gengur illa að manna skólana að fullu. Þá er mikilvægt að bregðast við og minnka vistunartíma með farsæld barna að leiðarljósi, en þar þarf einnig að hafa í huga aðstæður barnafjölskyldna til að mæta breytingum.
Tillögur að bættu leikskólaumhverfi eru settar fram með sveigjanleika í vistun barna sem mikilvægan þátt þannig að fjölskyldurnar velji sinn vistunartakt innan 40 tíma vistunar á viku að jafnaði. Gjaldskrá hvetur þær fjölskyldur sem geta til að stytta dvalartíma frekar og hún hækkar ekki að raunvirði.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt skref stigið með samþykkt tillagna um bætt leikskólaumhverfi sem verði börnum, fjölskyldum og síðast en ekki síst starfsfólki til heilla. Jafnframt er lögð áhersla á að mat verði gert með reglubundnu hætti á áhrif tillagnanna og brugðist við ef talin er þörf á. Garðabær mun hér eftir sem hingað til vera í fararbroddi í leikskólamálum.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar með breytingu á texta um innleiðingu. Tillögur 1-11 komi til framkvæmda á vorönn 2024. Á haustönn 2024 verði unnið að aðgerðaráætlun vegna tillagna 12-15 sem vísað verður til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Bæjarráð Garðabæjar

05

43.(2096). fundur

Tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla sem voru til meðferðar á fundi bæjarráðs 7. nóvember eru teknar fyrir að nýju.

Fram komu upplýsingar um að tillögurnar hafa verið kynntar stjórnendum og starfsmönnum leikskólanna og framundan eru almennar kynningar fyrir foreldra í framhaldi af afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breyttri tillögu að gjaldskrá þar sem leikskólagjald verði óbreytt krónutala fyrir 38 klst. á viku miðað við núverandi gjaldskrá eins og í fyrri tillögu. Leikskólagjöld samkvæmt gjaldskrá hækka fyrir næstu tvær klst. (39 og 40) en mun minna en samkvæmt tillögu sem kynnt var á fundi bæjarráðs 7. nóvember sl. Tillagan er óbreytt hvað varðar lækkun leikskólagjalda frá og með 37 klst. miðað við núverandi gjaldskrá.

Bæjarráð leggur áherslu á að fjölskyldur fái sanngjarna aðlögun að breyttum reglum um vistun og að áhrif breytinga á viðkvæma hópa verði metin sérstaklega.

Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrá leikskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

06

42.(2095). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði varðandi tillögur um betra starfsumhverfi leikskóla Garðbæjar. Tillögurnar voru unnar af starfshópi sem skipaður var stjórnendum í leikskólum, leikskólafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Tillögurnar hafa verið til umfjöllunar í leikskólanefnd sem samþykkti þær á fundi sínum 18. október sl. og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs.

Alls er um að ræða 15 tillögur og er gert ráð fyrir að tillögur 1-11 komi til framkvæmda á vorönn 2024 og á haustönn 2024 verði unnið að aðgerðaráætlun vegna tillagna 12-15 sem vísað verður til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Jafnframt liggur fyrir tillaga að breyttri gjaldskrá. Í nýrri gjaldskrá verður 38 klst. leikskólavistun á viku sama fjárhæð og í gildandi gjaldskrá. Gjaldskráin hækkar fyrir næstu tvær klst. (39 og 40) en lækkar frá 37 klst. miðað við núverandi gjaldskrá. Áfram verður hægt að sækja um afslátt sem er tekjutengdur. Í breyttri gjaldskrá er lagt til að viðmiðunartekjur verði annars vegar fyrir einstaklinga/forsjáraðila og hins vegar fyrir sambúðarfólk. Afslátturinn verði miðaðar við heildartekjur heimilis þar sem meðaltekjur einstaklings eru allt að 800.000 á mánuði en sambúðarfólks allt að 980.000 kr. á mánuði en var áður 865.469 kr. fyrir báða hópa. Afslátturinn verður áfram sem nemur 40% af almennu leikskólagjaldi. Systkinaafsláttur verður óbreyttur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögurnar.

Tillögu að gjaldskrá er vísað til sérstakrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

40. (2093). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir tillögur varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar. Tillögurnar voru samþykktar á fundi leikskólanefndar 18. október sl. og vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð lýsir ánægju með framkomnar tillögur og færir þakkir til leikskólanefndar og annarra aðila sem hafa komið að gerð þeirra. Bæjarráð tekur undir meginmarkmið tillagnanna að skapa sveigjanleika í leikskólastarfi með hagsmuni barna og starfsmanna að leiðarljósi.

Bæjarráð vísar tillögunum til fræðslu og menningarsviðs til nánari útfærslu á fjárhagslegum þáttum og til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 7. nóvember nk.

Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Leikskólanefnd Garðabæjar

08

12. fundur

Umræður um tillögur að umbótum í starfsumhverfi leikskóla. Farið yfir lokadrög að þeim 15 tillögum sem nefndin vísar til bæjarráðs.

Leikskólanefnd samþykkir tillögur um bætt starfsumhverfi leikskóla í Garðabæ og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.

Leikskólanefnd Garðabæjar

09

11. fundur

Umræður um tillögur að bættu starfsumhverfi leikskóla.

Umræður um tillögur að umbótum í starfsumhverfi leikskóla

Leikskólanefnd Garðabæjar

10

10. fundur

Farið yfir tillögur um bætt starfsumhverfi leikskóla

Umræður um tillögur á umbótum í starfsumhverfi leikskóla.

Leikskólanefnd Garðabæjar

11

9. fundur

Tillögur að bættu starfsumhverfi leikskóla Garðabæjar lagðar fram til kynningar og umfjöllunar.

Tillögur að bættu starfsumhverfi leikskóla Garðabæjar lagðar fram til kynningar og umfjöllunar.

Bæjarráð Garðabæjar

12

36. (2089). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerð grein fyrir tillögum að betra starfsumhverfi leikskóla sem lagðar hafa verið fram og kynntar í leikskólanefnd. Tillögurnar voru unnar af starfshópi skipuðum leiksskólastjórum og -stjórnendum auk starfsmanna fræðslu og menningarsviðs. Þær miða að því að auka farsæld barna, laða að gott starfsfólk og gera starfsumhverfi leikskólanna eftirsóknarvert.
Leikskólanefnd mun ræða, rýna og vinna tillögurnar áfram á næstu vikum og mun skila af sér endanlegum tillögum til bæjarráðs og bæjarstjórnar að því loknu. Lögð er áhersla á samráð við starfsfólk og foreldra í vinnu nefndarinnar.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

13

8. fundur

Tillögur að bættu starfsumhverfi leikskóla Garðabæjar lagðar fram til kynningar og umfjöllunar.

Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri kynnti tillögur að bættu starfsumhverfi leikskóla í Garðabæ.