Hönnun - Útboð - Vegamót Garðahraunsvegar og Álftanesvegar
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Lögð fram hönnunar og útboðsgögn fyrir breytingar á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar ásamt umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn og 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. Þetta er endurútgefið framkvæmdarleyfi þar sem eldra leyfi var útrúnnið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (909). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.“ (Mál nr. 2008661)
Bæjarráð Garðabæjar
05
35. (2042). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram hönnunar og útboðsgögn fyrir breytingar á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar ásamt umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn og 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
08
8. (1966). fundur
Í framhaldi af lokun Garðahraunsvegar við Herjólfsbraut samkvæmt samþykktu deiliskipulagi samþykkti bæjarráð 14. júlí 2020 að vinna í samstarfi við Vegagerðina að endurhönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar til að bæta umferðaröryggi.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, gerði grein fyrir frumdrögum að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar og frumdrög að kostnaðaráætlun að fjárhæð kr. 250,0 mkr.
Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að málinu og teknar upp viðræður við Vegagerðina um nánari útfærslu á framkvæmdinni.