35. (2042). fundur
35. (2042). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.10.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2106536
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 4.
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 4.
Fjölskyldusvið:
Aukinn kostnaður vegna nýrra einstaklinga í þjónustu. Afsláttur fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega er meiri en áætlun gerði ráð fyrir.
Sólarhringsþjónusta og búsetuúrræði kr. 5.000.000 02567-1110
Stoðþjónusta kr. 8.000.000 02530-4993
Afsláttur fasteignagjalda kr. 15.000.000 02415-9919
Samtals fjölskyldusvið kr. 28.000.000
Fræðslusvið.
Í maí sl. samþykkti bæjarstjórn sérstaka fjárveitingu til að eflingar starfsmannamála á leikskólum bæjarins.
Skólaskrifstofa kr. 25.000.000 04010-1981
Á fundi bæjarstjórnar í júní sl. samþykkti bæjarstjórn reglur um greiðslur til forráðmanna
barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ
Greiðslur til forráðamanna barna kr. 35.000.000 04175-9174
Dagforeldrar niðurgreiðslur kr. 8.000.000 04170-9173
Samtals fræðslusvið kr. 68.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál.
Frístundaakstur fyrir skólabörn var boðinn út á árinu. Aðeins eitt tilboðs barst sem var yfir kostnaðaráætlun. Það ásamt viðbótarakstri vegna Miðgarðs og fjölgunar barna í Urriðaholtsskóla hefur í för með sér aukinn kostnað. Hækka þarf styrk til GKG vegna niðurfellingu fasteignagjalda.
Frístundaakstur . kr. 13.000.000 06310-4111
Styrkur vegna fasteignagjöld GKG kr. 11.400.000 06830-9919
Samtals æskulýðs- og íþróttamál kr. 24.400.000
Sameiginlegur kostnaður.
Kostnaðarþátttaka Garðabæjar til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamningsgerðar
á árinu 2022 er um 4 m.kr.
Samtals sameiginlegur kostnaður kr. 4.000.000 21710-9612
Samtals aukin rekstrarútgjöld kr. 124.400.000
Tekjur.
Í maí var undirritaður samningur við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um sölu byggingarréttar lóða í Vetrarmýri samtals að fjárhæð kr. 3.281.897.000. Þá hefur einnig komið til sala á byggingarrétti lóða á öðrum svæðum.
Áætluð fjárhæð vegna selds byggingarréttar í fjárhagsáætlun var 1,0 ma og er hækkuð um 2,5 ma. Gera má ráð fyrir að vegna selds byggingarréttar minnki þörf fyrir að nýta lántökuheimild ársins.
Seldur byggingaréttur kr. 2.589.000.000 31400-0397
Rekstrarafgangur að teknu tilliti til viðauka 1-4 kr 2.526.872.000
Málsnúmer 2106536
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - lántaka.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000. Um er að ræða tvo lánasamninga. Lán samkvæmt samningi nr. 2210_28 að fjárhæð kr. 210.000.000, jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 2,4% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Lán samkvæmt samningi nr. 2210_29 að fjárhæð kr. 290.000.000, jafngreiðslulán til 33 ára, verðtryggt með ávöxtunarkröfunni 2,12% og er uppgreiðsluheimild tvisvar á lánstímanum í nóvember 2035 og 2045.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánasamningum.
Málsnúmer 2207009
03
Hrísmóar 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrísmóum 1, húsfélagi 540486-1749, leyfi til að breyta leikherbergi og geymslu sameignar í íbúð.
Málsnúmer 2206092
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi númer húsa við Höfðabraut.
Lögð fram.
Málsnúmer 2102111
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð við Víðiholt á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
-Íbúðareiningum innan skipulagssvæðisins fækkar úr 75 í 70.
Raðhús næst Lyngholti fellt út, íbúðum í fjölbýlishúsum fækkar um fjórar.
-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda. Fjarlægð þeirra frá lóðarmörkum við Asparholt 2 og 4 verður 15,1 í stað 10,6.
-Byggingarreitir raðhúsa minnka lítillega og færast fjær húsum við Asparholt, verða 10,4 m frá lóðarmörkum þeirra húsa í stað 6-7 m.
-Gert verði ráð fyrir 3 m bili fyrir göngustíg á milli lóða í Asparholti og Víðiholti frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Asparholts.
-Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 m í 6,3 m.
-Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1 m. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.
-Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út
-Bílastæðum fjölgar og er nú 2,3 stæði á íbúð þegar bílastæði á lóðum og gestastæði utan lóða eru reiknuð með.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2008661
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Málsnúmer 2107195
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1.
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við kauptún 1. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 4 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og gefa þær ekki tilefni til að gera breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2102110
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir hesthúsabyggð á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag hesthúsahverfis á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
Gert verður ráð fyrir aðkomugötu milli nýrra hesthúsalóða og eldri lóða nr.1, 2 og 3 og þar gert ráð fyrir bílastæðum sem nýtast eldri hesthúsum. Við það færast byggingarreitir sem því nemur í átt að reiðskemmu og hestagerði.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Nokkar athugasemdir sem borist hafa kalla á nánari útfærslu og leggur skipulagsnefnd til að unnin verði sérstök tillaga í samvinnu við hestamannafélagið Sóta sem lögð verði fram sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu þegar að deiliskipulag hefur verið staðfest.
Málsnúmer 2209518
09
Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi 70 ára afmæli félagsins árið 2023, dags. 29.09.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2209598
10
Tilkynning um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, 26.09.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2209603
11
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi framlög vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2023, dags. 27.09.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2209604
12
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi áætluð framlög til sveitarfélaga árið 2023, dags. 27.09.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2209647
13
Minnisblað Strætó bs. varðandi aukið rekstrarframlag, dags. 27.09.22.
Í minnisblaðinu er lagt til að rekstrarframlag til Strætó bs. fyrir yfirstandandi ár 2022 verði hækkað um 520,5 mkr og nemur hlutur Garðabæjar 7,5% eða kr. 38.963.562.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að framlag til Strætó bs. fyrir árið 2022 verði hækkað um kr. 38.963.562. Samþykktin er með fyrirvara um að öll aðildarsveitarfélög að byggðasamlaginu samþykki tillögu um hækkun á framlagi til Strætó. bs.
Málsnúmer 2202018
14
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð á svæði Króks á Álftanesi.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við gatnagerð í á svæði Króks á Álftanesi.
Óskatak ehf. kr. 279.275.100
Berg verktakar ehf. kr. 266.319.450
D.ing - Verk ehf. kr. 277.418.000
Klappverk ehf. kr. 370.293.450
Gleipnir Verktakar ehf. kr. 297.000.000
Íslenskir Aðalverktakar hf. kr. 332.093.730
Loftorka Reykjavík hf. kr. 296.672.857
Kostnaðaráætlun kr. 299.566.360
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Berg verktaka ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2209661
15
Minnisblað varðandi tilnefningar á áheyrnarfulltrúum í nefndum.
Í minnisblaðinu er vísað til ákvæðis í nýjum samþykktum um stjórn Garðabæjar varðandi tilnefningu áheyrnarfulltrúa.
Bæjarráð vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í fjölskylduráði, skipulagsnefnd og skólanefnd grunnskóla.
Málsnúmer 22091014
16
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi Jafnréttisþing 2022, dags. 30.09.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 22091016
17
Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2023, dags. 29.09.22.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Málsnúmer 2204047
18
Bréf G og Ó lögmanna varðandi samþykkt tilboðs í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu í Vetrarmýri, dags. 28.09.22.
Bæjarstjóri upplýsti að bréfinu hefur verið svarað og bréfritara veittar umbeðnar upplýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2208414
19
Aðgerðaráætlanir sviða - uppfærsla í september 2022.
Lagðar fram uppfærðar aðgerðaráætlanir einstakra sviða bæjarins á framkvæmd tillagna samkvæmt úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar sem gerð var í september 2019
Fylgiskjöl
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt - september 2022 (Tækni- og umhverfissvið) (i).pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt - sept 2022 (fræðslu- og menningarsvið).pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt - september 2022 (Fjármála- og stjórnsýslu).pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt - (Fjölskyldusvið) endurskoðuð Sþ_6 (i).pdf
Málsnúmer 22091017
20
Bréf UNICEF á Íslandi varðandi tækifæri barna til áhrifa með stofnun ungmennaráða, dags. 28.09.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar ungmennaráðs og felur bæjarstjóra að upplýsa bréfritara um að bæjarstjórn skipaði ungmennaráð árið 2013 og starfar ráðið samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var í bæjarstjórn í maí 2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 22091018
21
Bréf Land lögmanna varðandi kröfu um viðurkenningu á byggingarleyfisskyldri framkvæmd að Reynilundi 11, dags. 22.09.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar og tækni- og umhverfissviðs.