Beint í efni

Hrísmóar 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Málsnúmer 2207009

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

35. (2042). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrísmóum 1, húsfélagi 540486-1749, leyfi til að breyta leikherbergi og geymslu sameignar í íbúð.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (908). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna breytingar á leikrými í íbúð á jarðhæð fjölbýlishússins við Hrísmóa 1, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning fellur niður sbr. heimild í 2. ml. 2. mgr. sömu greinar enda varðar framkvæmdin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. (Mál nr. 2207009)

Bæjarráð Garðabæjar

03

32. (2039). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna breytingar á leikrými í íbúð á jarðhæð fjölbýlishússins við Hrísmóa 1, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning fellur niður sbr. heimild í 2. ml. 2. mgr. sömu greinar enda varðar framkvæmdin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram umsókn húsfélagsins að Hrísmóum 1 um byggingarleyfi fyrir 33 m2 íbúð á jarðhæð fjölbýlishússins. Í umræddu rými hefur verið aðstaða fyrir húsvörð sem ekki er lengur þörf fyrir. Í dag eru 38 íbúðir í húsinu. 52 bílastæði eru á lóð.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.Skipulagslaga þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir íbúðinni.