Hönnun - Útboð - Krókur gatnagerð og lagnir
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (911). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Króki. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Króki. (Mál nr. 2202018)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (2046). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Króki. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Króki.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs fyrir gatnagerð innan skipulagssvæðis deiliskipulags að Króki á Álftanesi.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn og deiliskipulag.
Bæjarráð Garðabæjar
04
35. (2042). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við gatnagerð í á svæði Króks á Álftanesi.
Óskatak ehf. kr. 279.275.100
Berg verktakar ehf. kr. 266.319.450
D.ing - Verk ehf. kr. 277.418.000
Klappverk ehf. kr. 370.293.450
Gleipnir Verktakar ehf. kr. 297.000.000
Íslenskir Aðalverktakar hf. kr. 332.093.730
Loftorka Reykjavík hf. kr. 296.672.857
Kostnaðaráætlun kr. 299.566.360
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Berg verktaka ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.