Beint í efni

Kauptún 1 -Breyting á deiliskipulagi Kauptúns

Málsnúmer 2107195

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (909). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

13. (909). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 4 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og gefa þær ekki tilefni til að gera breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2107195)

Bæjarráð Garðabæjar

03

35. (2042). fundur

Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við kauptún 1. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 4 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og gefa þær ekki tilefni til að gera breytingar á auglýstri tillögu.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1 að lokinni auglýsingu.

Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits. Samkvæmt tillögu er byggingarreitur stækkaður um 766 m2, þar af 149 m2 til vesturs vegna fyrirhugaðs anddyris en um 617 m2 til austurs. Hámarksbyggingarmagn er aukið úr 8.100 m2 í 8.400 m2. Að öðru leyti skulu gilda skilmálar sem koma fram í áður samþykktum deiliskipulagsskilmálum.
Tillagan var auglýst í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 frá 24.maí 2022 til og með 5.júlí 2022. Alls bárust 4 erindi með athugasemdum á kynningartíma.

Í innsendum athugasemdum frá öðrum rekstraraðilum koma fram áhyggjur þess efnis að auglýst gögn gefi ekki til kynna með hvaða hætti byggingin muni líta út og því sé ekki auðvelt að taka afstöðu til breytingartillögunnar.

Skipulagsnefnd bendir á að í kafla 6.1. í greinargerð (Útgáfa 1j) gildandi deiliskipulags segir: „Við afgreiðslu á byggingarleyfum og umsóknum eða leyfum sem skipulags-eða byggingaryfirvöld Garðabæjar afgreiða varðandi svæðið,s.s. lóðauppdráttum skal þess jafnan gætt að fyrir liggi umsögn landeiganda og rekstrarfélags/hagsmunafélags svæðisins.( ) Umsagnir aðila eru til leiðbeiningar fyrir skipulags-og byggingaryfirvöld Garðabæjar en binda þau ekki við afgreiðslu mála. Þetta gildir þó ekki um breytingar innanhúss eða minniháttar breytingar utanhúss sem að mati Garðabæjar geta ekki haft áhrif á hagsmuni annarra eigenda“
Á skýringarmyndum sem kynntar voru með tillögunni má skilja að hluti þaks í norðausturhorni byggingarreits geti verið aðgengilegur frá göngustíg. Skipulagsnefnd bendir á að sá möguleiki er alfarið í höndum lóðarhafa og ekki hluti af ákvæðum sem sett eru fram í deiliskipulagsbreytingunni.
Skipulagsnefnd beinir því til byggingarfulltrúa og bæjarráðs að rekstrarfélag Kauptúns fái aðaluppdrætti til umsagnar enda kallar deiliskipulagsbreytingin á verulegar breytingar utanhúss að Kauptúni 1. Skipulagnefnd mælir með því við byggingarfulltrúa og bæjarráð að taka fullt tillit til umsagnar rekstrarfélagsins á meðan hún er sett fram á rökstuddan og sanngjarnan hátt.
Í einni athugasemd kemur fram að stækkun byggingarreits gæti þrengt að möguleikum um undirgöng undir Urriðaholtsstræti í framtíðinni. Skipulagsnefnd bendir á að stækkun byggingarreits innan lóðar hafi ekki áhrif á útfærslur stíga utan hennar. Undirgöng undir Urriðaholtsstræti eru ekki fyrirhuguð á þessum stað frekar en annarsstaðar í Urriðaholti þar sem settar eru fram aðrar lausnir í deiliskipulagi til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta frá auglýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Kauptúns í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1 að lokinni auglýsingu.
Fjögur erindi með athugasemdum bárust innan tilskilins frests.
Skipulagsnefnd vísar tilögu og athugasemdum til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

8. (904). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

7. (903). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits og auknu byggingarmagni á lóðinni við Kauptún 1. (Mál nr. 2107195)

Ingvar Arnarson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

08

16. (2023). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits og auknu byggingarmagni á lóðinni við Kauptún 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits.
Samkvæmt tillögu er byggingarreitur stækkaður um 766 m2, þar af 149 m2 til vesturs vegna fyrirhugaðs anddyris en um 617 m2 til austurs. Hámarksbyggingarmagn er aukið úr 8.100 m2 í
8.400 m2. Að öðru leyti skulu gilda skilmálar sem koma fram í áður samþykktum deiliskipulagsskilmálum.
Lagðar fram skýringarmyndir sem sýna útfærslu á hæð byggingarinnar að ofanverðu að göngustíg milli Kauptúns 1 og Urriðaholtsstrætis 2. Þær hugmyndir hafa verið kynntar fyrir rekstraraðilum og eigendum að Urriðaholtsstræti 2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með þeirri útfærslu sem skýringarmyndir sýna til auglýsingar samkvæmt 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Óska skal eftir umsögnum rekstrarfélags Kauptúns og Urriðaholts ehf.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Byggingarreitur á lóð 1 er stækkaður um 760 m2,þar af 150 m2 til vesturs vegna fyrirhugaðs anddyris en um 600 m2 til austurs. Hámarksbyggingarmagn er aukið úr 8.100 m2 í 8.400 m2.
Að öðru leyti skulu gilda skilmálar sem koma fram í áður samþykktum deiliskipulagsskilmálum.

Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla byggingar og lóðar á lóðarmörkum að ofanverðu verði sýnd með skýringamyndum og samráð verði haft víð eigendur og rekstraraðila í Urriðaholtsstræti 2. Nefndin minnir á grein 7.1.9. í greinargerð gildandi deiliskipulags þar sem kveðið er á um að þak á nýjum hluta hússins skuli þakið náttúrulegum efnum svo sem grasi, mosa eða lyngmóa.

Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns ásamt umsögnum sem borist hafa.
Umsögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits og byggingarmagns. Þess skal gætt að tillaga sé í samræmi við ákvæði aðalskipulags.
Tillögu vísað til umsagnar rekstrarfélags Kauptúns og deiliskipulagshöfundar.