Höfðabraut - Númer húsa
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
8. fundur
Lögð fram tillaga að götuheiti við Höfðabraut á Álftanesi ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að funda með þeim sem athugasemdir gerðu og ræða ástæðu fyrirhugaðra breytinga á húsnúmerum.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á heitum og númerum húsa meðfram Höfðabraut á Álftanesi. Óskað var eftir umsögnum frá Húsnæðis- og mannvirkastofnun og frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Eftirfarandi stofnanir gerðu ekki athugasemd við tillöguna
Til einföldunar gerir tillagan ráð fyrir einu götuheiti frá gatnamótum við Suðurnesveg að Hliði og gert er ráð fyrir að gatan verði kennd við Hlið sem er við enda hennar; Hliðsvegur.
Kynna skal eigendum viðkomandi lóða tillöguna og gefa þeim færi á að gera athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á heitum og númeringum húsa meðfram Höfðabraut á Álftanesi sem hefur verið kynnt eigendum viðkomandi húsa. Athugasemdir hafa borist.
Tillögunni vísað til umsagnar Neyðarlínunnar ohf og Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að húsnúmerum húsa við Höfðabraut á Álftanesi en þau hafa hingað til verið án húsnúmera.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar meðal eigenda umræddra hús og þeim gefinn kostur á því að gera athugsemd við tillöguna eða leggja fram aðrar tillögur.