Hesthúsahverfi Breiðumýri - Deiliskipulag.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (924). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir félagssvæði Sóta á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Byggingarreitir núverandi hesthúsa verði breikkaðir inn í hestagerði úr 7,5 í 8,5 metra þannig að hægt verði að stækka stíur til samræmis við gildandi reglugerðir. Útigerði húsa númer 5, 4 og 6 verði stækkuð til suðurs og austurs og tryggja þannig að betur fari um hrossin í þéttsetnu hverfi. Sorpgerði og bíla- og kerrustæðum verði hnikað um 2 metra til austurs eins og Veitur óska eftir í erindi sínu.
Skipulagsnefnd hafnar að fallast á lengingu húsa númer 5 og 6 og bendir á að gert er ráð fyrir 3 nýjum hesthúsum í hverfinu. Þá er ekki fallist á að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir viðbyggingum við núverandi hús sem þrengja að aðkomugötu en bent er á að heimilað verður að stækka húsin talsvert í hina áttina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2102110)
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2076). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir félagsvæði Sóta á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Lagt er til að gera eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu. Byggingarreitir núverandi hesthúsa verði breikkaðir inn í hestagerði úr 7,5 í 8,5 metra þannig að hægt verði að stækka stíur til samræmis við gildandi reglugerðir. Útigerði húsa númer 5, 4 og 6 verði stækkuð til suðurs og austurs og tryggja þannig að betur fari um hrossin í þéttsetnu hverfi. Sorpgerði og bíla-og kerrustæðum verði hnikað um 2 metrar til austurs eins og Veitur óska eftir í erindi sínu.
Skipulagsnefnd hafnar að fallast á lengingu húsa númer 5 og 6 og bendir á að gert er ráð fyrir 3 nýjum hesthúsum í hverfinu. Þá er ekki fallist á að gera ráð fyrir byggingarreit fyrir viðbyggingum við núverandi hús sem þrengja að aðkomugötu en bent er á að heimilað verður að stækka húsin talsvert í hina áttina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar í Breiðumýri á Álftanesi að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar í tillögunni:
Byggingarreitir núverandi hesthúsa verði breikkaðir inn í hestagerði úr 7,5 í 8,5 metra þannig að hægt verði að stækka stíur til samræmis við gildandi reglugerðir.
Að útigerði húsa númer 5, 4 og 6 verði stækkuð til suðurs og austurs og tryggja þannig að betur fari um hrossin í þéttsetnu hverfi.
Að sorpgerði og bíla-og kerrustæðum verði hnikað um 2 metrar til austurs eins og Veitur óska eftir í erindi sínu.
Ekki er fallist á lengingu húsa númer 5 og 6 og bent á að gert er ráð fyrir 3 nýjum hesthúsum í hverfinu.
Ekki er fallist á að gera ráð fyrir bygginarreit fyrir viðbyggingar núverandi húsa sem þrengja að aðkomugötu en bent er á að heimilað verður að stækka húsin talsvert í hina áttina.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem deiliskipulag Hesthúsahverfis í Breiðumýri í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar í Breiðumýri (Sótasvæði) að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd fellst á að taka til greina eitt erindi með athugasemdum sem barst eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
4. (919). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagsvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Tillagan er auglýst að nýju þar sem formleg staðfesting á samþykkt bæjarstjórnar á skipulagi svæðisins var ekki birt innan lögákveðins frests samkvæmt 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2102110)
Bæjarráð Garðabæjar
06
9. (2062). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagsvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Tillagan er auglýst að nýju þar sem formleg staðfesting á samþykkt bæjarstjórnar á skipulagi svæðisins var ekki birt innan lögákveðins frests samkvæmt 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hesthúsabyggðar í Breiðumýri á Álftanesi. Tillagan var samþykkt sl haust en vegna mistaka var auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins ekki birt fyrir 16.febrúar sl en þá var liðið rétt ár frá því að athugasemdafresti deiliskipulagstillögunnar lauk. Samkvæmt 2.mgr.42.gr.skipulagslaga nr.123/2010 er tekið fram að ef ekki er búið að auglýsa gildistöku einu ári eftir að athugasemdafresti lauk þá teljist tillagan ógild.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.og 31.gr.sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
13. (909). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag hesthúsahverfis á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
Gert verður ráð fyrir aðkomugötu milli nýrra hesthúsalóða og eldri lóða nr.1, 2 og 3 og þar gert ráð fyrir bílastæðum sem nýtast eldri hesthúsum. Við það færast byggingarreitir sem því nemur í átt að reiðskemmu og hestagerði.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.“ (Mál nr. 2102110)
Bæjarráð Garðabæjar
10
35. (2042). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag hesthúsahverfis á Álftanesi. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum við tillöguna. Afstaða hefur verið tekin til athugasemda og eftirfarandi breytingar gerðar á auglýstri tillögu.
Gert verður ráð fyrir aðkomugötu milli nýrra hesthúsalóða og eldri lóða nr.1, 2 og 3 og þar gert ráð fyrir bílastæðum sem nýtast eldri hesthúsum. Við það færast byggingarreitir sem því nemur í átt að reiðskemmu og hestagerði.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Nokkar athugasemdir sem borist hafa kalla á nánari útfærslu og leggur skipulagsnefnd til að unnin verði sérstök tillaga í samvinnu við hestamannafélagið Sóta sem lögð verði fram sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu þegar að deiliskipulag hefur verið staðfest.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Breiðumýri að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögnum.
Tillagan var auglýst frá 10. nóvember 2021 til og með 16. febrúar 2022. Alls bárust 15 erindi með athugasemdum sem varða ýmist tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt eða tillögu að deiliskipulagi Hesthúsahverfis í Breiðumýri (Sótasvæði).
Varðandi þau varnaðarorð sem fram koma í bókun heilbrigðisnefndar um nálægð hesthúsabyggðar við íbúðarbyggð þá telur skipulagsnefnd að sú nálægð sé í samræmi við það yfirlýsta leiðarljós að Álftanes sé "sveit í borg".
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunni:
-Gert verður ráð fyrir aðkomugötu milli nýrra hesthúsalóða og eldri lóða nr.1,2 og 3 og þar gert ráð fyrir bílastæðum sem nýtast eldri hesthúsum. Við það færast byggingarreitir sem því nemur í átt að reiðskemmu og hestagerði.
Nokkar athugasemdir sem borist hafa kalla á nánari útfærslu og leggur skipulagsnefnd til að unnin verði sérstök tillaga í samvinnu við hestamannafélagið Sóta sem lögð verði fram sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu þegar að deiliskipulag hefur verið staðfest.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem deiliskipulag hesthúsahverfis í Breiðumýri með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
4. fundur
Tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði Sóta ásamt umsögnum og athugasemdum lögð fram. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
3. fundur
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu.
Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
14. fundur
Skipulagsstjóri greinir frá ákvörðun tækni- og umhverfissviðs að fresta kynningarfundi sem fara átti fram í dag. Ástæðan er staðan í faraldrinum og samkomutakmarkanir. Tilkynnt hefur verið að fundurinn muni fara fram eftir áramót.
Skipulagsnefnd leggur til að fundurinn verði haldinn fimmtudaginn 13. janúar 2022 og athugasemdafrestur verði framlengdur til 27. janúar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
15
15. (893). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi. Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla." (Mál nr. 2102110)
Bæjarráð Garðabæjar
16
42. (2000). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagsvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Félagssvæðis Sóta að lokinni forkynningu. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Helstu breytingar á tillögunni eru:
- Mön sem aðskilur íbúðabyggð og hesthúsasvæði verður samfeld og göngustígur á milli felldur út.
- Hestagerði fært inn á opið svæði við Suðurnesveg og bætt við mön meðfram vegi.
- Ekki verður gert ráð fyrir settjörnum innan hesthúsasvæðisins vegna öryggissjónarmiða.
- Byggingarreitir nýrra hesthúsa breikkaðir lítillega.
- Byggingarreit fyrir dómarahús breytt.
- Reiðleiðum innan svæðis breytt vegna öryggissjónarmiða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar í Álftanesskóla á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
11. fundur
Tillaga að deiliskipulagi hesthúsasvæðis lögð fram að lokinni forkynningu.
Ábendingar hafa borist og þær lagðar fram. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs funduðu með fulltrúum íbúa við Asparholt og Lyngholt og fundargerð þess fundar lögð fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
19
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð á félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta. (Mál nr. 2102110)
Bæjarráð Garðabæjar
20
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð á félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði Sóta. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á forkynningartíma og leita skal umsagnar umsagnaraðila sem og Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
5. fundur
Arnar Þór Jónsson arkitekt hjá Arkís kynnti drög að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði Sóta í Breiðumýri sem liggur að landi Sveinskots(Víðiholti).
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og Tækni-og umhverfissviði.