16. (1974). fundur
16. (1974). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.05.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1808087
01
Framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - áfangaskýrsla.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Lögð fram áfangaskýrsla vegna verkstöðu, fjármögnun og framvindu næstu mánuði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagskráliðum 1-3 og Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúar voru á fjarfundi undir sömu dagskrárliðum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104129
02
Kynning á úrgangs- og innkaupastefnu.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis og gerði grein fyrir stöðu innleiðingar á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar ásamt því að upplýsa um stöðu Garðabæjar í öllum aðgerðum í umhverfis og loftlagsmálum.
Fram kom að vegna aðstæðna í Covid hefur þurft að fresta ákveðnum þáttum innleiðingar. Næstu skref er að halda fundi með grænum teymum í leikskólum og grunnskólum.
Farið var yfir undirbúning vinnu við gerð loftlagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104394
03
Sumarstörf ungmenna 2021.
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri gerði grein fyrir umsóknum um sumarstörf ungmenna. Heildarfjöldi umsókna 17 ára og eldri er 793 og þá hafa 612 skráð sig í Vinnuskólann. Verið er að ganga frá ráðningum og allir fá vinnu. Garðabær hefur fengið úthlutað 45 stöðugildum í 2,5 mánuði frá Vinnumálastofnun sem er liður í atvinnuátaki námsmanna. Samsvarar það til 79,7 stöðugilda í 87,5% starfi í 7 vikur. Umsækjendur þurfa að vera skráðir í nám að hausti 2021 eða hafa verið skráðir í nám á vorönn 2021. Fram kom að sótt hefur verið um viðbótarstöðugildi til Vinnumálastofnunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006130
04
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.200.000.000, verðtryggt með 1,12% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.
Málsnúmer 2103271
05
Hofslundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ómari R. Valdimarssyni, kt. 070777-4879, leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti þakkants núverandi einbýlishúss við Hofslund 3.
Málsnúmer 2102218
06
Seinakur 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnari Gauta Reynisson, kt. 240381-3899, leyfi til að byggja einbýlishús við Seinakur 6.
Málsnúmer 2103273
07
Hörgslundur 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hákoni Víði Guðmundssyni, kt. 220676-4989, leyfi til að lækka botnplötu í kjallara og gera útlitsbreytingar á núverandi húsi við Hörgslund 9.
Málsnúmer 2010080
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna Garðahverfis.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni forkynningu. Engar ábendingar bárust á forkynningartíma. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2104263
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi smáhýsi við lóðarmörk á lóðinni við Reynilund 11.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við samþykki skipulagsnefndar að leyfa staðsetningu smáhýsis á lóðinni við Reynilund 11 nær lóðarmörkum við bæjarland en 3 metrar sbr. ákvæði g-liðar í grein 2.3.5 í byggingarreglugerð.
Málsnúmer 2012166
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir sem skipulagsnefnd telur ástæðu til að taka tillit til.
Málsnúmer 2103205
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 34 í 42.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 2103593
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 19 í 20 og breytingu á byggingarrétt.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 2104445
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Vetrarmýri. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2103398
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsögn við tillögu að endurskoðun aðalskipulags Kópavogs 2019-2040.
Lögð fram ásamt umsögn sem send verður skipulagsráði Kópavogs.
Málsnúmer 2104444
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn HS Veitna hf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 11 kV háspennujarðstrengs milli Kaldárselsvegar og Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulaglaga fyrir lagningu 11kV háspennujarðstrengs meðfram Flóttamannavegi frá bæjarmörkum við Kaldárselsveg að Urriðaholti.
Málsnúmer 2102110
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði Sóta.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð á félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Málsnúmer 2102111
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Víðiholt.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúarðbyggð við Víðiholt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir svæði sem liggur á milli Asparholts og hesthúsabyggðar þar sem ekki var áður staðfest deiliskipulag. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. Leita skal umsagnar Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.
Málsnúmer 2104418
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun í Glerhallardýi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun í Glerhallardýi.
Um er að ræða losun allt að 39.500 m3 af jarðvegi í Glerhallardýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020. Gert er ráð fyrir efnislosun á svæðinu í heild verði 45.500 m3 og hefur þegar verið heimilað að losa 6.000 m3. Stærð heildarsvæðisins þar sem jarðvegur verður losaður er 32.700 m2 Það ákvörðun skipulagsnefndar að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Vísast þar til 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en framkvæmdin fellur undir lið 2.04 í 1.viðauka laganna sem fellur í flokk C. Það er því í verkahring sveitarfélagsins að taka ákvörðun um matsskyldu.
Málsnúmer 2009072
19
Opnun tilboða í sorphirðu í Garðabæ.
Eftirfarandi tilboð bárust í sorphirðu í Garðabæ.
Fljótavík ehf. kr. 468.646.000
Íslenska gámafélagið ehf. kr. 267.140.000
Kubbur ehf. kr. 332.171.283
Terra ehf. kr. 301.174.283
Kostnaðaráætlun kr. 297.276.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Íslenska gámafélagsins ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2006240
20
Opnun tilboða í viðgerðir á steyptum gönguleiðum.
Eftirfarandi tilboð bárust í viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ.
Stjörnugarðar ehf. kr. 30.000.000
Tinnuberg ehf. kr. 27.335.000
Reykjaverk ehf. kr. 106.576.760
Berg verktakar ehf. kr. 36.400.000
Mostak ehf. kr. 29.894.000
Vargur ehf. kr. 50.972.000
Alma verk ehf. kr. 49.850.000
Kostnaðaráætlun kr. 35.605.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Tinnubergs ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2104398
21
Erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010255
22
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi framkvæmdir að Reynilundi 11.
Lagður fram. Í úrskurðarorði kemur fram að felld er úr gildi ákvörðun bæjarráðs að samþykkja afgreiðslu byggingarfulltrúa á tilkynntri stækkun bílskúrs að Reynilundi 11.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104399
23
Bréf Samtaka um karlaathvarf varðandi beiðni um fjárhagsstuðning, dags. 22.04.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fjölskylduráðs og til fjárhagsáætlunar 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104462
24
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Te og Kaffi um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Garðatorgi 4.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Te & kaffi fá rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Garðatorgi 4.
Málsnúmer 2103259
25
Tilkynning félagsmálaráðuneytisins um úthlutun styrks til að efla félagsstarf fullorðinna, dags. 27.04.21.
Í tilkynningunni kemur fram að Garðabær hefur fengið úthlutað styrk að fjárhæð kr. 4.209.200 til eflingar á félagsstarfi fullorðinna.
Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði nánari grein fyrir hugmyndum um ráðstöfun styrksins.
Málsnúmer 2104065
26
Bréf Fjölsmiðjunnar varðandi framtíðarfjármögnun, dags. 28.04.21.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að taka málið upp til samræmingar á vettvangi stjórnar Samtaka sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104472
27
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um barnaverndarlög (barnaverndarþjónusta, samþætting o.fl., 731. mál., dags. 27.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104473
28
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fjöleignarhús (rafrænir húsfundir og fjölbreytt húsnæði), 748. mál., dags. 27.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104508
29
Fyrirspurn um nýtingu strætó.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 2006130
30
Gjaldskrá sumarfrístundar.
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun gjaldskrár sumarfrístundar um 2,5% og fjölgun á dögum úr fimm í sex.
Gjald fyrir sumarfrístund árið 2021 verður kr. 13.500.