Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi smáhýsi við lóðarmörk á lóðinni við Reynilund 11.
Málsnúmer 2104263
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. (1974). fundur
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við samþykki skipulagsnefndar að leyfa staðsetningu smáhýsis á lóðinni við Reynilund 11 nær lóðarmörkum við bæjarland en 3 metrar sbr. ákvæði g-liðar í grein 2.3.5 í byggingarreglugerð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk að bæjarlandi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir hönd Garðabæjar sem landeiganda staðsetningu smáhýsis eins og teikning sýnir og er í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um stærð og hæð smáhýsa sem undanþegin eru byggingarleyfi.
Skipulagsstjóri víkur af fundi undir þessum lið.