Kinnargata 92 - stækkun bílakjallara -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
30 (1988). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi úr 18 í 19 og breytingu á byggingarreit. Tillagan skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 903.856 á íbúð m.v. BVT 780,7 stig í ágúst 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 19 í 20 og breytingu á byggingarreit. Engar athugasemdir bárust við tillöguna á auglýsingartíma og telst tillagan því samþykkt og skal hún send til Skipulagsstofnunar til meðferðar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 19 í 20 og breytingu á byggingarreit.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2103593)
Bæjarráð Garðabæjar
05
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 19 í 20 og breytingu á byggingarrétt.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því fjölgi um eina íbúð á lóðinni (jarðhæð) og að byggingarreitur bílakjallar breytist.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
5. fundur
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um innihald fyrirspurnar. Fyrirspurn og umsögn vísað til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
5. fundur
Umsókn um deiliskipulagsbreytingu vísað til umsagnar hjá deiliskipulagsráðgjafa.