Beint í efni

Kynning á úrgangs- og innkaupastefnu.

Málsnúmer 2104129

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

16. (1974). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis og gerði grein fyrir stöðu innleiðingar á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar ásamt því að upplýsa um stöðu Garðabæjar í öllum aðgerðum í umhverfis og loftlagsmálum.

Fram kom að vegna aðstæðna í Covid hefur þurft að fresta ákveðnum þáttum innleiðingar. Næstu skref er að halda fundi með grænum teymum í leikskólum og grunnskólum.

Farið var yfir undirbúning vinnu við gerð loftlagsáætlunar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

13. (1971). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

„Garðabæjarlistinn leggur til að fram fari kynning í bæjarráði á stöðu og innleiðingu á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.

Jafnframt að samhliða verði farið yfir stöðu Garðabæjar í öllum aðgerðum í umhverfis og loftslagsmálum.“

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa kynningu í bæjarráði fyrir bæjarfulltrúa um stöðu málsins.