Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (977). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar: Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni. Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi. Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs. Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar. Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti: Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti. Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (2208). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar:
Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni.
Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi.
Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs.
Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar.
Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti:
Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti.
Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar:
Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni.
Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi.
Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs.
Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar.
Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti:
Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti. Á „gildandi skipulagi“ eru umræddar villur sýndar.
Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Garðaholts og Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
32 (22-26). fundur
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til Garðahverfis.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
17. (969). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillaga að breytingu gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu á lóð Grænagarðs í samræmi við hugmynd um skólastarfsemi á lóðinni. Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa tillögunni með ofangreindri breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynna skal tillögu samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.Samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarráð Garðabæjar
07
43. (2191). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Tillaga að breytingu gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu á lóð Grænagarðs í samræmi við hugmynd um skólastarfsemi á lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa tillögunni með ofangreindri breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynna skal tillögu samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að breytingu á tillögunni sem gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu á lóð Grænagarðs í samræmi við hugmynd um skólastarfsemi á lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að vísa tillögunni með ofangreindri breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynna skal tillögu samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Baldur Ó. Svavarsson greiðir atkvæði gegn tillögunni. Guðlaugur Kristmundsson situr hjá.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og er í samræmi við framlagða tillögu að deiliskipulagi Garðahverfis. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir innihaldi tillögunnar. Afgreiðslu málsins frestað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
15. fundur
Lögð fram tillag að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Garðaholts og er í samræmi við framlagða tillögu að deiliskipulagi Garðahverfis.
Tillagan er óbreytt frá fyrri auglýsingu árið 2021 og lá þá fyrir niðurstaða Skipulagsstofnunar að lokinni athugun. Stofnunin gerði ekki athugasemd við að tillagan yrði auglýst.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni auglýsingu.
4 erindi með athugasemdum hafa borist og þau lögð fram.
Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni forkynningu. Engar ábendingar bárust á forkynningartíma. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖÁW). (Mál nr. 2010080)
Bæjarráð Garðabæjar
13
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni forkynningu. Engar ábendingar bárust á forkynningartíma. Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni forkynningu 2.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Engar ábendingar bárust á forkynningartíma sem kalla á breytingu tillögunnar.
Meiihluti skipulagsnefndar vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 31.gr.sömu laga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar. Baldur Ó Svavarsson greiðir atkvæði gegn tillögunni.
Bæjarstjórn Garðabæjar
15
3. (881). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis Grænagarðs (1.09) í Garðahverfi.
Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. (Mál nr. 2010080)
Bæjarráð Garðabæjar
16
6. (1964). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis Grænagarðs (1.09) í Garðahverfi.
Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að afmörkun opins svæðis (1.09 Grænigarður) breytist. Um leið eru lagðar til leiðréttingar á landnotkunartáknum uppdráttar í Garðaholti sem voru ekki réttir á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti.
Ábendingar og umsagnir sem bárust vegna verkefnislýsingar lagðar fram.
Meirihluti skipulagsnefndar, 4 af 5, vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Baldur Ó. Svavarson greiðir atkvæði gegn tillögunni,sjá bókun við 4.fundarlið.
Tillagan skal forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
13. fundur
Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Bókun vegna óvæginna umæla ÁHJ á bæjarstjórnarfundi.
Undirritaður vill af gefnu tilefni koma eftirfarandi bókun á framfæri, vegna bókunar formanns Bæjarráðs á bæjarstjórnarfundi þann 5. nóv. s.l. og varðaði skipulag á Garðaholti.
Þar hafði undirritaður ekki tök á að verja sig og bókar því hér
Í bókun sinni ýjar formaðurinn ósmekklega að því að undirrót gagnrýni minnar á undarlegt einkavætt skipulag á Garðholti stafi af hagsmunapoti vegna fyrri vinnu minnar við skoðun á möguleikum svæðisins til framtíðar. Fer í manninn frekar en boltann eins og gjarnt er um rökþrota
En það kemur svo sem ekki á óvart að fulltrúi sjálfstæðimanna geri það og ýji að hagsmunapoti ? því margur heldur mig - sig.
Það skal hinsvegar skýrt tekið fram að undirritaður hefur nákvæmlega engra hagsmuna að gæta vegna þessara fornu vinnu, enda fór hún fram fyrir hart nær 20 árum. Verkefninu lauk þá og er að fullu uppgert við þáverandi bæjaryfirvöld.
En minna má á að sú vinna var að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra og bæjaryfirvalda sjálfstæðisflokksins sem höfðu nokkuð aðra og nútímalegri framtíðarsýn á þetta svæði, en samflokksfélagar þeirra og núverandi yfirvöld.
Hins vegar þekkir undirritaður svæðið og möguleika þess betur en flestir vegna einmitt þeirrar vinnu. Betur en formaðurinn rökþrota og það er ástæða þess að ég hef beitt mér. Ég veit hverju er fórnað af verðmætum og framtíðar möguleikum þarna, auk þess sem núverandi áform gefa færi á braski sem reyndar er þegar hafið.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.
Baldur Ó. Svavarsson "
Bæjarstjórn Garðabæjar
19
16. (875). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi. (Mál nr. 2010080) Ingvar Arnarson, Sara Dögg Svanhildardóttir Harpa Þorsteinsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Ingvar Arnarson, óskaði eftir að bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram í skipulagsnefnd verði færð til bókunar í fundargerð bæjarstjórnar.
"Undirritaður fulltrúi minnihlutans hefur marg varað við vanreifuðu einkavæddu deiliskipulagi Garðahverfis. Enn eru kynntar breytingar á þessu skipulagi - nú í 10 liðum !. Hættan á skipulagslausri uppbyggingu þessa svæðis er því sannarlega fyrir hendi skv. þessum gögnum, líkt og varað hefur verið við. Þarna er að verða til enn eitt bútasaumaða skipulagið svo vitnað sé í þekkt orðfæri. Enn skal minnt á að hér er fórnað einhverju glæsilegasta byggingasvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu, í gæluverkefni, greitt af einkaaðila í bænum. Undirrituðum skilst þó að þessar kynntu breytingarnar séu kostaðar af bæjarsjóði í þetta sinn. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Vakin er athygli á því að Baldur Ó Svavarsson, arkitekt og fulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd vann samkeppni um Rammaskipulag á Garðaholti árið 2001. Rammaskipulagið gerði ráð fyrir um 7-8 þúsund íbúa byggð með tilsvarandi umferðaflæði og næði yfir um 130 hektara lands þar á meðal Garðahverfið sem inniheldur miklar forn- og menningarminjar.
Bókun fulltrúa Garðabæjarlistans verður að taka með þeim fyrirvara að viðkomandi hefur verulega mikla hagsmuni af því að unnið verði eftir því rammaskipulagi á Garðaholti sem hann er höfundur að.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur fallið frá rammaskipulaginu sem kynnt var 2001/2002, enda ekki í samræmi við áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í umhverfismálum og á friðlýsingar á náttúru- og menningarminjum í landi Garðabæjar. Íbúar Garðabæjar geta og hafa tjáð skoðun sína á áherslum bæjarstjórnar á fjögurra ára fresti.
Megin markmið og tilgangur með nýju skipulagi Garðahverfis er að festa í sessi framtíðarsýn fyrir Garðahverfi og skilgreina markmið og leiðir að þeirri sýn. Það er gert með því að setja skilmála fyrir mannvirkjagerð og verndun náttúru og búsetuminja á svæðinu. Áherslur deiliskipulagsins eru að stuðla að varðveislu menningar- og náttúruminja í Garðahverfi og gera það aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Sérstaklega er tekið mið af sögulega sérstöku búsetulandslagi og aldagömlu hlutverki svæðisins, sem kirkju- og menningarstaðar, en um leið lögð áhersla á að tryggja viðhald og eðlilega þróun byggðar í Garðahverfi.„
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna bókun.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls á ný.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls á ný.
Gunnar Einarsson, tók til máls á ný.
Bæjarráð Garðabæjar
20
43. (1951). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til svæðis í Garðahverfi. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Ingvar Arnarson, vakti athygli á bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram við afgreiðslu málsins í skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
11. fundur
Lögð fram sameiginleg lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og á breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir breytingum á Garðaholti. Opið svæði 1.89 Op og Íbúðarsvæði 1.76 Íb breyta um lögun til samræmis við tillögur að breytingum deiliskipulags Garðahverfis. Tákn fyrir landnýtingu 1.81 M, 1.77 S og 1.80 S verða lagfærð en þau voru ranglega framsett á aðaluppdrætti aðalskipulagsins
Meirhluti skipulagsnefndar samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Baldur Ó.Svavarsson hafnar framlagðri lýsingu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður fulltrúi minnihlutans hefur marg varað við vanreifuðu einkavæddu deilsikpulagi Garðahverfis Enn eru kynntar breytingar á þessu skipulagi - nú í 10 liðum !.
Hættan á skipulagslausri uppbygginu þessa svæðis er því sannlega fyrir hendi skv. þessum gögnum, líkt og varað hefur verið við. Þarna er að verða til enn eitt bútasaumað skipulagið svo vitnað sé í þekkt orðfæri.
Enn skal minnt á að hér er fórnað einhverju glæsilegasta byggingasvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu, í gæluverkefni, greitt af einkaaðila í bænum. Undirrituðum skilst þó að þessar kynntu breytingarnar séu kostaðar af bæjarsjóði í þetta sinn.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."