Beint í efni

11. fundur

27.08.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

11. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

27.08.2026

Kl. 08:00 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - varamaður
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2010080

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts öðru sinni eftir auglýsingu en að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingablaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (10. apríl 2026) og bæjarstjórnar (14. apríl 2026).

Málsnúmer 2010078

02

Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis öðru sinni eftir auglýsingu en nú að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingablaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (10. apríl 2026) og bæjarstjórnar (14. apríl 2026).

Málsnúmer 2203422

03

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Tillögu og innsendum gögnum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 1710244

04

Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Gálgahrauns að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Tillögu og innsendum gögnum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 2405208

05

Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gera m.a. ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.

Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir veitingarými í flokki II. Í þeim flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og sem almennt kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.

Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæðum í byggingarlýsingu á uppdrætti:

“- Í samræmi við notkun byggingarinnar í byggingarlýsingu sem veitingarými í flokki II og með tilliti til aðstæðna þá skal samkvæmi vera alfarið innanhúss eftir kl. 23:00 um helgar en kl. 22:00 á virkum dögum. Á sama tíma skal lækka niður í hljóðkerfum og annarri háværri tónlist.

- Notkun hljóðkerfa utanhúss er óheimil.

- Flugeldanotkun er óheimil nema á þeim tímum sem reglur um almenna notkun kveða á um.

- Bálkestir eru óheimilir nema með tilskyldum leyfum.

- Ákvæði um notkun hússins sem sett eru fram í þessari byggingarlýsingu skal endurskoða í kjölfar gildistöku deiliskipulags- og aðalskipulagsbreytingar sem nær til svæðisins ef ástæða er til.

Umfjöllun byggingarlýsingar um skipulag á svæðinu skal breytt og þar skal standa:

- „Lóðin stendur innan svæðis sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Samkvæmt kafla 3.15 í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á opnum svæðum megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu. Ekkert deiliskipulag er formlega í gildi fyrir svæðið (Norðurnes). „

Skipulagsnefnd mælist til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi. Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að svörum við athugasemdum sem borist hafa og gerir nefndin engar athugasemdir við þau.

Meirihluti skipulagsnefndar samþykkir með 4 atkvæðum (BF, ÁSÁ, AV og VK) gegn einu (EÞE) að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á grenndarkynntum gögnum og byggingarlýsingu með ofangreindum breytingum.

Fulltrúi Framsóknar (EÞE) leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi Framsóknar í skipulagsnefnd Garðabæjar er ekki andvígur veislu- og veitingaþjónustu á þessum stað í sjálfu sér, sé rétt að henni staðið. Forsendan er traustur skipulagslegur grunnur og raunverulegt samráð við íbúa.

Samkvæmt gögnum bæjarins sjálfs er byggingin á opnu svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Fulltrúinn leggur því til að afgreiðslu verði frestað þar til fyrir liggur skriflegt álit bæjarlögmanns á því hvernig umsóknin samræmist gildandi aðalskipulagi, hljóðvistargreining óháðs aðila, og mat á áhrifum starfseminnar á fuglalíf og hverfisverndað svæði við Breiðabólstaðatjörn.

Samtímis er mikilvægt að leitað verði samtals við umsækjanda og íbúa um opnunartíma, hámarksfjölda gesta og notkun útisvæða, svo afgreiðsla málsins geti byggt á sátt."

Áheyrnarfulltrúi Garðabæjarlistans (GPL) leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi Garðabæjarlistans lýsir undrun á vinnubrögðum umsækjanda, þar sem framkvæmdir hafa verið hafnar án þess að tilskilin byggingarleyfi liggi fyrir og rekstur þegar hafinn í umræddri byggingu án þess að rekstrarleyfi hafi verið gefið út.

Garðabæjarlistinn telur uppbyggingu og atvinnustarfsemi af þessu tagi geta verið jákvæða fyrir samfélagið. Það breytir þó ekki þeirri skyldu sveitarfélagsins að tryggja að uppbygging og rekstur fari fram í samræmi við lög, reglur og skipulag og að fullt tillit sé tekið til hagsmuna íbúa, nágranna og náttúrunnar á svæðinu.

Við teljum því mikilvægt að málið verði tekið til nánari skoðunar áður en byggingarleyfi er veitt, sérstaklega með tilliti til áhrifa starfseminnar á nærliggjandi íbúabyggð, umhverfis- og náttúruverndar og þess hvort umfang og eðli starfseminnar samræmist skipulagi og aðstæðum á svæðinu.

Garðabæjarlistinn styður atvinnuuppbyggingu og verkefni sem auðga samfélagið, en slík sjónarmið mega ekki ganga framar vandaðri og eðlilegri málsmeðferð. Sömu reglur og kröfur eiga að gilda um alla og mikilvægt er að sveitarfélagið gæti jafnræðis, hagsmuna íbúa og umhverfis við afgreiðslu málsins."

Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar (KAK) leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi Samfylkingarinnar telur rétt að staldra við í þessu máli. Ljóst er að mikil vinna og framtaksemi hefur einkennt uppbygginguna á svæðinu og starfsemin hefur skapað margar ánægjulegar stundir. Á sama tíma er sú staða uppi að verið er að fjalla um byggingarleyfi fyrir byggingu og starfsemi sem þegar hefur verið komið á fót. Það er óheppilegt og undirstrikar mikilvægi þess að farið sé eftir eðlilegum farvegi við uppbyggingu og leyfisveitingar.

Jafnframt þarf að hlusta á ábendingar og áhyggjur íbúa. Af þeim má ráða að starfsemin hafi að einhverju leyti raskað þeirri ró sem íbúar sóttust eftir með því að búa á þessu svæði.

Mikilvægt er að hlusta á sjónarmið allra, leita sameiginlegra lausna og skapa meiri sátt um starfsemina og umgjörð hennar til framtíðar."

Málsnúmer 2607140

06

Vesturtún 49a - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn frá eiganda parhúseiningarinnar Vesturtúns 49a hvort samþykkt verði að byggja 15 m2 smáhýsi á lóðarmörkum sem myndi ná u.þ.b. 2 metra inn á bæjarland.

Svar: Skipulagsnefnd fellst ekki á staðsetningu smáhýsis sem nær út fyrir lóðarmörk. Nefndin bendir ennfremur á að samkvæmt deiliskipulagi á lóðin Vesturtún 47b lóðarmörk að opnu svæði bæjarins og staðsetning núverandi smáhýsis torveldar aðkomu frá þeirri lóð að opnu svæði.

Málsnúmer 2604413

07

Hraunhólar - Lynghólar - samgöngustígur - Deiliskipulag

Lögð fram tillaga skipulagsstjóra um að mótaðar verði tillögur að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra og deiliskipulags Bæjargarðs þess efnis að stofnstígur um Lynghóla og Hraunhóla verði felldur út en gert verði ráð fyrir stofnstíg í hrauninu sunnan Hraunhóla.

Hafa þarf samráð við Náttúruverndarstofnun þar sem hraunið er friðlýst sem fólkvangur og einnig er máli vísað til umsagnar hjá umhverfisnefnd Garðabæjar. Breytingartillaga er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar um legu stofnstíga á svæðinu.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra.

Málsnúmer 2608272

08

Hafnarfjarðarvegur dsk frá Lyngási í Engidal

Lögð fram tillaga að bráðabirgðadeiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Engidal. Bráðabirgðadeiliskipulag Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Vífilsstaðavegi var samþykkt árið 2019.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr.skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2604290

09

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Leikskóli

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lágmarksstærð atvinnurýmis á jarðhæð með leikskóla á reit F verði minnkuð úr 1.908 m2 í 800 og að það gæti verið um 2 deilda leikskóla að ræða í stað 3-4 deilda. Einnig er sótt um að hámarksbyggingarmagn íbúða ofanjarðar verði 6.659 m2 í stað 5.551 m2. Með því breytist byggingarmagn ekki en notkun breytist að hluta úr atvinnu í íbúðarrými.

Umsókn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2605039

10

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Atvinnurými E-reitur

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að ákvæði um að lámarks fermetrafjöldi atvinnurýmis á jarðhæð á reit E, 410 m², verði að lágmarki 200 m² og að heimilt verði að auka byggingarmagn íbúða sem fækkun atvinnurýmis nemur.

Umsókn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.



Málsnúmer 2605059

11

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Sameining lóða - E, F, G og K

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til eftirfarandi lóða; E, F, G og K.

Helstu breytingar samkvæmt tillögunni yrðu:

Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist - Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur yrðu áfram á vegum Garðabæjar.

Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar. - Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri. - Byggingarreitur neðanjarðar breytist. - Aðkoma að bílakjallara færist. Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir.

Skipulagsnefnd óskar eftir ítarlegri gögnum sem sýna hugmyndir uppbyggingaraðila með hvaða hætti lóð og göngutengingar yrðu útfærðar.

Málsnúmer 2604479

12

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir út fyrir byggingarreit

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði í grein 5.2.5.6 í greinargerð deiliskipulagsins sem kveður á um svalir, gustlokanir og svalaganga. Óskað er eftir því að svalir geti náð út fyrir byggingarreit húshliða sem snúa að götu um 2 metra eins og kveðið er á um svalir sem snúa að inngarði.

Skipulagsnefnd bendir á að umrætt ákvæði sé sett með birtugæði íbúða og útlitsgæði húshliða sem snúa að götu í huga.

Skipulagsnefnd óskar eftir nánari útlistun á hugmyndum uppbyggingaraðila varðandi staðsetningu þeirra svala sem óskað er eftir breytingum á.

Málsnúmer 2604410

13

Arnarland_umsókn um dsk.br. - Útveggir bílakjallara

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði um hámarkshæð útveggja kjallara.

Skipulagsnefnd óskar eftir ítarlegri gögnum sem sýna hugmyndir uppbyggingaraðila og með hvaða hætti útveggir bílakjallara yrðu útfærðir.

Málsnúmer 2607221

14

Arnarland - Umsókn um dsk.br. Djúpgámar - bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa sem snýr að staðsetningu djúpgáma í Arnarlandi fyrir lóð E og F. Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til skoðunar hjá höfundum lóðarblaða og gatnahönnuða.

Málsnúmer 2607139

15

Skeiðakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu sem tengir þau við verönd.

Í skilmálum deiliskipulags grein 1.1.8 segir að stærð neðri hæðar skuli ekki fara yfir 70% af flatarmáli aðalhæðar. Samkvæmt tillögu er flatarmál neðri hæðar orðið stærra en flatarmál efri hæðar.

Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Skeiðakurs 1, 3 og 4 sem og Sandakurs 1 og 3, Seinakurs 2 og Stórakurs 1 og 3.

Málsnúmer 2606044

16

Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.

Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008.

Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða.

Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45.

Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.

Málsnúmer 2606062

17

Vinastræti 18-26 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 og háholts.

Tillagan var kynnt á fundi skipulagsnefndar 11. júní síðastliðinn. Hugmyndir sem tillagan byggir á var kynnt á íbúafundi 11. mars síðastliðinn.

Í tillögu að deiliskipulagsbreytingu felst að:

-Skilmálum á lóð Vinastrætis 20-24 er breytt þannig að lóðin verður eftir breytingu lóð fyrir atvinnu og íbúðarhúsnæði.

-Samtals er heimilt að byggja allt að 35 íbúðir á lóð, þar af allt að 12 íbúðir minni en 90m² birt stærð

-Lóð Vinastrætis 18 er felld niður og verður eftir breytingu hluti af torgi. Lóð nr. 20-24 stækkar en lóð nr. 26 minnkar.

-Byggingarreitur á lóð nr. 18 er felldur niður.

-Byggingarreitir og kennisnið á lóð Vinastrætis 20-24 breytast.

-Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum.

-Lóð Vinastrætis 20-24 verður eftir breytingu Vinastræti 18-22. Lóð Vinastrætis 26 verður eftir breytingu Vinastræti 24. Lóð Vinastrætis 28 verður eftir breytingu Vinastræti 26.

-Kvöð er um gegnumakstur og samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 18-22 og Vinastrætis 24. Sjá skilmálatöflu á skýringaruppdrætti.

-Bílastæðakrafa fyrir íbúðir er tvö stæði fyrir íbúðir stærri en 90 m² en eitt stæði fyrir íbúðir minni en 90 m² og bílastæðakrafa fyrir atvinnuhúsnæði er 1 stæði

fyrir hverja 35 m² atvinnuhúsnæðis.

-Á lóð skulu vera 10 stæði fyrir íbúðir og öll stæði fyrir atvinnurými, staðsett skv. skipulagsuppdrætti og mæliblaði. Öll bílastæði skulu vera innan lóðar. Aðkoma að bílastæðum á lóð og bílgeymslu er frá Vinastræti. Kvöð er um aðkomu að bílastæðalóð og gegnumakstur á lóð. Rekstur, umhirða og viðhald bílastæða og akstursleiða á lóð skal vera á sameiginlegri ábyrgð eigenda húsa á lóðinni í hlutfalli við

skiptingu bílastæða á lóðinni.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr.skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð skipulagslýsingar og forkynningu þar sem að tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.

Málsnúmer 2509355

18

Frumvarp til laga um skipulagslög (breytingar á svæðisskipulagi), 28. mál

Vakin er athygli nefndarmanna á frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum sem varða ákvæði um svæðisskipulag.

Málsnúmer 2608280

19

Umferðaröryggisáætlun Garðabæjar

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir vinnu við umferðaröryggisáætlun Garðabæjar.

EÞE þurfti að yfirgefa fund eftir 8. fundarlið.