Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (974). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin var af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt. Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999. Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa. Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar. Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum. Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi. Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd. Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (2201). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin var af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt.
Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa.
Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar.
Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum.
Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi.
Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd.
Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra sem unnin hefur verið af Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt.
Innan deiliskipulagssvæðisins eru tvö friðlýst svæði, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland í samræmi við 1. tl. 53. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi, í samræmi við 55. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
Friðlýstu svæðin tvö mynda órofa heild frá strönd að núverandi samgöngumannvirkjum og er svæðið þekkt fyrir merkar hraunmyndanir sem ná niður að sjó. Svæðið er einnig þekkt fyrir forna slóða sem liggja í gegnum hraunið og Gálgakletta. Svæðið er á jaðri byggðar og er vinsælt göngusvæði einstaklinga og gönguhópa.
Megin markmið deiliskipulagsins er verndun mikilvægra náttúruminja, jarðmyndana, gróðurfars og fuglalífs. Einnig er lögð áhersla á fræðsluþátt friðlýsingarinnar og á það ekki síst við um sögulegar minjar.
Undirliggjandi markmið skipulagsins snúa að lýðheilsumarkmiðum Garðabæjar, þar sem lögð er áhersla á að bæta vistvænar samgönguleiðir og skapa gott aðgengi að mikilvægum útivistarsvæðum.
Í skipulaginu er þannig reynt að stuðla að hollri útivist en á sama tíma vernda einstakar hraunmyndanir og náttúra með stýrðu aðgengi.
Í friðlýsingu fólkvangsins segir m.a. „markmið friðlýsingarinnar er að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi“, deiliskipulagið er unnið með það í huga ásamt ríkri áherslu á náttúruvernd.
Lýsing verkefnisins var samþykkt í byrjun árs 2019 og forkynning fór fram síðar á því ári.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hún skal kynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskiplags Garðabæjar sem nær til stígakerfis.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
33 (22-26). fundur
Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Dagný Bjarnadóttir gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og þeim forsendum sem lagðar eru til grundvallar.
Tillagan hefur verið löguð að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
8. (848). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Gálgahrauns verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Dagný Bjarnadóttir skipulagshönnuður og Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri kynntu tillögur að deiliskipulagi friðlandisins Gálgahrauns og Garðahrauns neðra. Tillögu hefur verið vísað af skipulagsnefnd til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissvið. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við vinnu að nánari úrvinnslu á tillögu, ábendingum og umsögnum hjá deiliskipulagsráðagjafa og umhverfis- og tæknisviði verði rask á hrauni ekki meira en nauðsynlegt er og stígagerð verði stillt í hóf.
Umhverfisnefnd óskar eftir að fá kynningu að lokinni úrvinnslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
8. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi friðlandsins Gálgahrauns og fólkvangsins Garðahrauns neðra. Dagný Bjarnadóttir deiliskipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni. Tillagan hefur verið forkynnt, m.a. á íbúafundi í Flataskóla 6. maí 2019. Lagðar fram ábendingar sem borist hafa ásamt umsögn frá Skipulagsstofnun vegna lýsingar verkefnisins.
Tillögu, ábendingum og umsögnum vísað til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni og umhverfissviði. Tillögu vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Bæjarráð Garðabæjar
10
17. (1878). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Gálgahrauns verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
7. fundur
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi friðlandsins Gálgahrauns og fólkvangsins Garðahrauns neðra.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal drögin á íbúafundi í Flataskóla þann 6.maí.
Tillögunni vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
2. (842). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og ræddi tillögu að lýsingu fyrir friðland Gálgahrauns.
Stella Stefánsdóttir, ræddi tillögu að lýsingu fyrir friðland Gálgahrauns og svaraði fyrirspurn.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna deiliskipulagstillögu fyrir friðland Gálgahrauns. Lýsingin skal send til kynningar í umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
15
3. (1864.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna deiliskipulagstillögu fyrir friðland Gálgahrauns. Lýsingin skal send til kynningar í umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
1. fundur
Lögð fram lýsing á deiliskipulagsgerð fyrir friðland Gálgahrauns og Garðahrauns neðra.
Dagný Bjarnadóttir kynnti drög að deiliskipulaginu.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Áður en lýsingin er send umsagnaraðilum og kynnt almenningi skal hún kynnt umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
17
40. fundur
Dagný Bjarnadóttir landlagsarkitekt vinnur að deiliskipulagi friðlandsins í Gálgahrauni fyrir hönd Garðabæjar.