17. (1878). fundur
17. (1878). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
07.05.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1810028
01
Betri Garðabær - tillögur matshóps um verkefni á kjörseðli.
Á fund bæjarráðs mætti Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöður matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“.
Alls bárust 304 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og leggur matshópurinn til að 27 hugmyndir fari í kosningu.
Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins. Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 23. maí til 3. júní nk.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1901367
02
Dýjagata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ellum ehf., kt.461109-2170, leyfi til að byggja einbýlishús að Dýjagötu 10.
Málsnúmer 1902006
03
Hraunprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eyjólfi Valgarðssyni, kt. 280857-4169, leyfi til að loka opinni bílageymslu við raðhúsið að Hraunprýði 6.
Málsnúmer 1902171
04
Hraunprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Elísabetu Halldórsdóttur, kt. 150765-4559, leyfi til að loka opinni bílageymslu við raðhúsið við Hraunprýði 8.
Málsnúmer 1902172
05
Hraunprýði 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lindu Björk Stefánsdóttur, kt. 080566-5819, leyfi til að loka opinni bílageymslu við raðhúsið við Hraunprýði 10.
Málsnúmer 1902173
06
Hraunprýði 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Þorvaldssyni, kt. 271060-2549, leyfi til að loka opinni bílageymslu við raðhúsið að Hraunprýði 12.
Málsnúmer 1710244
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Gálgahraun.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Gálgahrauns verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1706258
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um lokun á svalarými við Hraungötu 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna lokunar svalarýmis einbýlishússins að Hraungötu 8 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1812022
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Garðahrauns efra verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1704011
10
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi tillögu deiliskipulagi fyrir Holtstún á Álftanesi, dags. 17.04.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1901022
11
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Blikastíg 18.
Bæjarráð getur ekki mælt með að umbeðið leyfi verði veitt þar sem um er að ræða staðsetningu á gistirými í íbúðarhverfi og fyrir liggur neikvæð afstaða nágranna vegna ónæðis og óþæginda frá starfseminni.
Málsnúmer 1905026
12
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis veitinga í Jónshúsi.
Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1904327
13
Bréf Samgöngustofu varðandi beiðni um umsögn vegna staðsetningu ökutækjaleigu (Miðhraun 22B), dags. 26.04.19.
Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1903272
14
Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Kirkjubóli.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við endurbætur Kirkjubóls.
Flotgólf ehf. 169.158.372
E. Sigurðsson ehf. 173.237.787
Kostnaðaráætlun 149.396.620
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Flotgólfs ehf., með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905008
15
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2019-2022, 771. mál., dags. 30.04.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1905010
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skráningu einstaklinga, 772. mál., dags. 30.04.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1901301
17
Erindi UMF Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Stjörnunnar um endurnýjun samstarfsamnings.
Bæjarráð samþykkir að boða fulltrúa Stjörnunnar á fund bæjarráðs til að kynna framgangs þróunarverkefnis sem styrkt var sérstaklega undanfarin tvö ár í þeim tilgangi að efla starfsemina og bjóða upp á aukna möguleika fyrir iðkendur og minnka líkur á brottfalli.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1903357
18
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi skoðun á fjárhagsáætlunum sveitarfélaga, dags. 23.04.19.
Málsnúmer 1905011
19
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga, dags. 02.05.19.
Málsnúmer 1905013
20
Sumarlaun tónlistarskóla Garðabæjar 2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2019.
Auður Indriðadóttir, kt. 270200-2750
Björgvin Brynjarsson, kt. 031095-2559