Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Kirkjubóli.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (1878). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við endurbætur Kirkjubóls.
Flotgólf ehf. 169.158.372
E. Sigurðsson ehf. 173.237.787
Kostnaðaráætlun 149.396.620
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Flotgólfs ehf., með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1874). fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti hönnunar- og útboðsgögn vegna endurbóta á húsnæði Leikskólans Kirkjubóls.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdin verði boðin út og útboð auglýst.