13. (1874). fundur
13. (1874). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
02.04.2019
Kl. 08:00 - 09:12
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1903409
01
Öldrunar- og heimaþjónusta í Garðabæ - kynning.
Hildigunnur Árnadóttir, félagsráðgjafi kynnti stöðu mála varðandi öldrunar- og heimaþjónustu í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806461
02
Fjárhagsáætlun 2019 - lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000, verðtryggt með 2,30% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806461
03
Staða framkvæmda 2019.
Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709351
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. dagskrárliði nr. 5 - 9. Tillögurnar hafa verið auglýstar og frestur til að gera athugasemdir var frá 27. desember 2018 til 7. febrúar 2019. Fjölmargar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti. Þær hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir svör við þeim. Tekið hefur verið tillit til athugasemda og liggja fyrir tillögur um breytingar sem fram koma undir einstaka tillögum. Þær teljast ekki breyta upphaflegum tillögum grundvallaratriðum og þarf því ekki að koma til að auglýsa tillögurnar að nýju, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga
Lögð eru fram drög að fornleifaskráningu húsakönnun. Með gildistöku tillagna að nýju deiliskipulagi falla úr gildi núgildandi deiliskipulög svæðanna.
Samþykktar tillögur skulu sendar Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811131
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Íbúðum fækki í Breiðumýri um 18 eða sem nemur 2 íbúðum á hvern húskjarna (úr 270 í 252)
Nýtt ákvæði um að hús í Breiðumýri næst Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Skólatúni verði ekki hærri en 2 hæðir. Þau hús geta hvort heldur verið útfærð sem raðhús eða fjölbýlishús.
Nýtt ákvæði um að hús í norðvesturhorni Hestamýrar nr. 3 verði ekki hærri en 1 hæð innan þess reits sem deiliskipulagsráðgjafi lagði til á fundinum.
Sérnotafletir íbúða á jarðhæð verði stækkaðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
Skjólveggir á sérnotareitum verði útfærðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
Hámarkshæð húsa í Lambamýri lækki um 1m (úr 12m í 11m) og í Grásteinsmýri og Hestamýri um 1,5 m (úr 12 m í 10,5 m).
Byggingarreitir í Breiðumýri breikki úr 10 m í 12,5 m.
(Gildandi deiliskipulag sem staðfest var árið 2007 gerir ráð fyrir allt að 307 íbúðum á landnotkunarreit 1.23 í aðalskipulagi. Eftir breytingu á auglýstri tillögu sem lögð er til þá fækkar íbúðum um 19 og verða þá 264 íbúðir innan landnotkunarreitsins.)
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811132
06
Afgeiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Króks á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Íbúðum (raðhúsum) fækki í Króki um 3 (Svanamýri 9 og Gásamýri 23 og 25)
Gásamýri 31, 29 og 27 verði hliðrað til suðurs.
(Gildandi deiliskipulag sem staðfest var árið 2007 gerir ráð fyrir allt að 307 íbúðum á landnotkunarreit 1.23 í aðalskipulagi. Eftir breytingu á auglýstri tillögu sem lögð er til þá fækkar íbúðum um 19 og verða þá 264 íbúðir innan landnotkunarreitsins.)
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811133
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Leiðrétt er misræmi í auglýstri tillögu milli uppdráttar og greinargerðar hvað varðar hámarkshæð einbýlishúsa í Helguvík. Rétt er hæð 7,5 eins og hún kom fram í greinargerð.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811134
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Skógtjarnar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Skógtjörn á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Heiti Holtsbrekku verði breytt í Dalsbrekku.
Tenging Dalsbrekku verði í beinu framhaldi af Tjarnarbrekku.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1811135
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Hámarkshæð parhúsa í Kumlamýri lækki um 1,0 m (verði 7,5 m) Göngustígur í gegnum Kumlamýri færist suður fyrir byggðina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1903374
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi gerð lýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi í tengslum við breytingar á deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Lögð fram.
Málsnúmer 1903120
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn Álftaneskaffi um leyfi til viðbyggingar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús Álftaneskaffi verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1809246
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Keldugötu nr. 2-20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytinga á lóðum við Keldugötu. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1901294
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13.
Lögð fram.
Málsnúmer 1903162
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.
Lögð fram.
Málsnúmer 1710301
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Haukanesi 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Haukaness 13, 14, 16, 17 og 18 og Þrastaness 16 og 18.
Málsnúmer 1903272
16
Leikskólinn Kirkjuból - Útboð framkvæmda við endurbætur.
Bæjarverkfræðingur kynnti hönnunar- og útboðsgögn vegna endurbóta á húsnæði Leikskólans Kirkjubóls.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdin verði boðin út og útboð auglýst.
Málsnúmer 1903416
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurími), 711. mál., dags. 25.03.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1903417
18
Bréf skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi rekstraruppgjör 2018, dags. 25.03.19
Málsnúmer 1810028
19
Lýðræðisverkefnið - reglur um rafrænar kosningar.
Lagðar fram reglur um rafrænar kosningar vegna kosninga um hugmyndir í verkefninu „Betri Garðabær“
Málsnúmer 1903441
20
Bréf Styrktarsjóðs EBÍ 2019 varðandi umsóknarfrest, dags. 25.03.19.
Málsnúmer 1903385
21
Tölvupóstur Skipulagsstofnunar varðandi lýsingu fyrir gerð landsskipulagsstefnu um loftslag, landslag og lýðheilsu, dags. 20.03.19.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1903383
22
Umsókn samtakanna Plastlaus september um styrk vegna átaks á árinu 2019, dags. 13.03.19.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu umhverfisnefndar.