Beint í efni

Haukanes 15 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1710301

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ágústi Birgissyni, kt. 300465-2939, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Haukanesi 15.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits fyrir byggingu útigeymslu á lóðinni við Haukanes 15. Tillagan var grenndarkynnt og var gerð athugasemd við fjölgun bílastæða innan lóðar og er ekki fallist á fjölgun bílastæða innan lóðar umfram það sem nú er. (Mál nr.1710301)

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (868). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits fyrir byggingu útigeymslu á lóðinni við Haukanes 15. Tillagan var grenndarkynnt og var gerð athugasemd við fjölgun bílastæða innan lóðar og er ekki falliat á fjölgun bílastæða innan lóðar umfram það sem nú er.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir útigeymslu með sama gólfkóta og neðri hæð húss. Tillagan gerir einnig ráð fyrir bílastæðum fyrir fjóra bíla og breyttri staðsetningu þeirra. Lagðar fram athugasemdir sem bárust í grenndarkynningu.
Lagðar fram hugmyndir að útfærslu lóðar sem gerir ráð fyrir meiri gróðri umhverfis bílastæði en í grenndrarkynntri tillögu.
Skipulagsnefnd leggur til að ekki verði gert ráð fyrir bílastæðum á lóð umfram þau þrjú sem fram koma í deiliskipulagi fyrir framan bílageymslu og aðalinngang. Bent er á að stækkaður bygginarreitur er fyrir útigeymslu en ekki bifreiðar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu á tilhögun bílastæða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

14. fundur

Lagðar fram hugmyndir sem hafa verið unnar á vegum umsækjanda um útfærslu sem kemur til móts við athugasemdir. Skipulagsstjóra falið að funda með þeim sem athugasemdir gerðu og kynna fyrir þeim hugmyndirnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við neðri hæð. Athugasemdir sem bárust við grenndarkynningu lagðar fram. Vísað til frekari úrvinnslu á tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

8. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Tvö erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögunni og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

6. (846). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Haukanesi 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Haukaness 13, 14, 16, 17 og 18 og Þrastaness 16 og 18.

Bæjarráð Garðabæjar

10

13. (1874). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Haukanesi 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Haukaness 13, 14, 16, 17 og 18 og Þrastaness 16 og 18.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

4. fundur

Lögð fram umsögn deiliskipulagsráðgjafa um tillögu að stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar.
Með vísan í framlagða umsögn vísar skipulagsnefnd tillögu um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við neðri hæð hússins til grenndarkynniningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í sarmræmi við 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 13, 14, 16,17 og 18 pg Þrastaness 16 og 18.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags þar sem gert er ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir 1 hæðar viðbyggingu sem sé í sama gólfkóta og neðri hæð hússins vestan við húsið. Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

14. fundur

Málinu frestað þar til deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.