Beint í efni

21. (1929). fundur

02.06.2020
Bæjarráð Garðabæjar

21. (1929). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

02.06.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1904109

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - lántaka.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1-2.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 600.000.000, verðtryggt með 1,5% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1904109

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðaukar 1-4.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1.

Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 m.kr.

Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um 375 mkr og verði 2.175 mkr.

Viðauki 2.

Fjölskyldusvið

Fjárhagsaðstoð 26.000.000 02110-9112

Sérstök niðurgreiðsla húsaleigu 12.000.000 02180-9179

Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 18.350.000 02582-4990

Stoðþjónusta (frekari liðveisla) 80.300.000 02530-4382

Sambýli viðbótarkostnaður 14.000.000 ýmsir lyklar

Kostnaðarauki vegna kaupa á Covid vörum 1.000.000 ýmsir lyklar

Akstursþjónusta fatlaðs fólks -5.000.000 02590-4118

Félagsleg heimaþjónusta -5.000.000 02150-4990

Afsláttur fasteignagjalda eldri borgara -18.000.000 02415-9916

Jónshús - áhrif lokunar -2.000.000 ýmsir lyklar

Samtals kostnaðarauki félagsþjónusta 121.650.000

Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -121.650.000 31400-0397

Viðauki 3.

Á fundi bæjarráðs þann 5. maí 2020 var samþykkt að ráða öll ungmenni í sumarvinnu sem sótt hafa um og skráð verða á biðlista til 31. maí 2020.

Atvinnuátak ungs fólks laun 166.000.000 11330-

Efni 10.000.000 11330-

Endurgreiðsla frá ríki -58.100.000 11340-

Launakostnaður 74.350.000 11340-

Efni 5.000.000 11340-

Samtals viðbótarkostnaður 197.250.000

Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -154.350.000

Lækkun á rekstrarafgangi 42.900.000

Viðauki 4.

Breyting á fjárfestingaáætlun

Samveitur 100.000.000

Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 100.000.000

Bæjargarður útivistarstígur -50.000.000

Garðatorg -100.000.000

Minjagarður við Hofsstaði -50.000.000

Málsnúmer 1907105

03

Urriðaholtsstræti 40 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Urriðaholtsstræti 40.

Málsnúmer 1804367

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Vífilsstaðaland.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að taka tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar við auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna Vífilsstaðalands.

Málsnúmer 1910293

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Vetrarmýri.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.

Málsnúmer 1906192

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir norðurhluta Hnoðraholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.

Málsnúmer 1910294

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Rjúpnadal.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Rjúpnadal. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.

Málsnúmer 1710301

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulag Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits fyrir byggingu útigeymslu á lóðinni við Haukanes 15. Tillagan var grenndarkynnt og var gerð athugasemd við fjölgun bílastæða innan lóðar og er ekki falliat á fjölgun bílastæða innan lóðar umfram það sem nú er.

Málsnúmer 2003086

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Lyngmóum 3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir sérnotareitum á lóð og aðgengi frá íbúðum á neðstu hæð að þeim, verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1903374

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á norðurnesi Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á norðurnesi Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.

Málsnúmer 1803108

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti.

Málsnúmer 2005345

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju götuheiti á Grundum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt heiti, Þórsgrund, á götu á Grundum.

Málsnúmer 2005356

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verk- og matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Kópavogsbæjar 2012-2024 og Reykjavíkurborgar 2010-2030.

Lögð fram.

Málsnúmer 2005346

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir vatns- og raflögn að skátaskála í Heiðmörk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs og vatnsveitu í reiðleið frá Kjóavöllum að útilífsmiðstöð skáta í Heiðmörk.

Málsnúmer 2005047

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um ljósaskjá að Litlatúni 1.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um uppsetningu á ljósaskjá á lóðinni við Litlatún 1, enda í andstöðu við skilmála gildandi deiliskipulags um skilti og merkingar.

Málsnúmer 2003254

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Fluguvöllum 4.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna byggingar þakkvista á hesthúsið við Fluguvelli 4. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Málsnúmer 1902106

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsögn Umhverfisstofnunar um áhrif golfbrauta í Urriðavatnshrauni.

Lögð fram.

Bæjarráð vísar umsögn Umhverfisstofnunar til umfjöllunar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 1912183

18

Erindi Íslensku lögfræðistofunnar f.h. umbj. varðandi kröfu um innlausn lóðar og skaðabætur, dags. 06.03.20.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja við lóðarhafa um innlausnarverð lóðar og þátttöku í kostnaði við jarðvegsframkvæmdir o.fl. samtals að fjárhæð 43,5 mkr.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í lóðina.

Málsnúmer 2005421

19

Ársskýrsla Hönnunarsafns Íslands 2019.

Lögð fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005165

20

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um ráðstöfun 19. júní sjóðs.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um niðurlagningu 19. júní sjóðs og ráðstöfun sjóðsinneignar.

„Lagt er til að 19. júní sjóður verði lagður niður og allt fé sjóðsins, sem nam í árslok 2019 kr. 24.895.251, renni til bæjarsjóðs. Samhliða því er tillaga um að kr. 4.000.000 verði úthlutað bæði á árinu 2020 og 2021 til að efla og styrkja íþróttir og líkams- og heilsurækt kvenna. Frá árinu 2022 verði svo kr. 2.000.000 úthlutað á ári til sama málefnis þar til fjármunum sjóðsins er að fullu úthlutað.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005446

21

Ársreikningur Hrafnistu Ísafoldar 2019.

Í ársreikningum kemur fram að tap ársins nemi kr. 26,7 mkr og greiðir Garðabær samkvæmt samningi um rekstur hjúkrunarheimilisins framlag til Hrafnistu að fjárhæð 24,0 mkr.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005447

22

Bréf UMFÁ varðandi stúkubyggingu við Álftanesvöll, dags. 28.05.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005428

23

Bréf Landskerfa bókasafna hf. varðandi aðalfund 2020, dags. 26.05.20.

Málsnúmer 2004350

24

Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi söfnun upplýsinga um fjárhagsstöðu sveitarfélaga, dags. 25.05.20.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að veita ráðuneytinu umbeðnar upplýsingar um stöðu og rekstur sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005386

25

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um tilnefningu fulltrúa í starfshóp um stafræna stjórnsýslu, dags. 26.05.20.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Sunnu G. Sigurðardóttur, verkefnastjóra sem fulltrúa Garðabæjar í starfshóp um stafræna stjórnsýslu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005451

26

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, 838. mál., dags. 28.05.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2005452

27

Bréf JFS um innheimtu gjalda, dags. 28.05.20.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808087

28

Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús.

Málsnúmer 1908023

29

Viðauki við samning um uppbyggingu íbúðarbyggðar við Eskiás.

Bæjarstjóri kynnti drög að samningi við Mótás Garðabæ ehf. um samruna lóða og ráðstöfun á sameiginlegum lóðum til Mótáss Garðabæjar ehf. þar sem byggingarréttargjald er kr. 75.000 á fermetra.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.