Ný gata við Ægisgrund/Þórsmörk - tillaga að heiti
Málsnúmer 2005345
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (868). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt heiti, Þórsgrund, á götu á Grundum. (Mál nr. 2005345)
Bæjarráð Garðabæjar
03
21. (1929). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt heiti, Þórsgrund, á götu á Grundum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að heiti götunnar frá fyrirhuguðu hringtorgi við Vífilsstaðaveg að Marargrund/Stórás/Njarðargund. Lagt er til heitið Þórsgrund með vísan í norræna goðafræði eins og aðrar götur á Grundum og í húsið Þórsmörk. Samþykkt.