Beint í efni

9. (868). fundur

04.06.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

9. (868). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

04.06.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. maí 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2005133

01

Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.

Tillaga kom fram um Sigurð Guðmundsson og Ingvar Arnarson í embætti forseta bæjarstjórnar til eins árs. Átta bæjarfulltrúar (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) greiddu Sigurði atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Sigurður Guðmundsson, telst því rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

Sigurður Guðmundsson þakkaði bæjarfulltrúum traustið.

Tillaga kom fram um Björgu Fenger og Ingvar Arnarson sem fyrsta varaforseta til eins árs. Átta bæjarfulltrúar (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) greiddu Björgu atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Björg Fenger, telst því rétt kjörin fyrsti varaforseti bæjarstjórnar.

Tillaga kom fram um Almar Guðmundsson, sem 2. varaforseta til eins árs. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE). Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 2005132

02

Kosning fimm fulltrúa í bæjarráð til eins árs.

Tillaga kom fram um eftirfarandi fulltrúa til setu í bæjarráði til eins árs:

Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, varaformaður, Almar Guðmundsson, Björg Fenger, Ingvar Arnarson.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2005136

03

Kosning eins aðalmanns og varamanns í stjórn Strætó bs.

Tillaga kom fram um Gunnar Val Gíslason, sem aðalmann og Björgu Fenger sem varamann í stjórn Strætó bs. Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2005135

04

Kosning eins aðalmanns og varamanns í stjórn Sorpu bs.

Fram kom tillaga um Jónu Sæmundsdóttur og Söru Dögg Svanhildardóttur sem aðalmann í stjórn Sorpu bs. Átta bæjarfulltrúar (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) greiddu Jónu atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Söru Dögg atkvæði.

Jóna Sæmundsdóttir, telst því rétt kjörin aðalmaður í stjórn Sorpu bs.

Fram kom tillaga um Sigríði Huldu Jónsdóttur, sem varafulltrúa í stjórn Sorpu bs. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE). Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 2005134

05

Kosning fulltrúa í kjörstjórn Garðabæjar.

Fram kom tillaga um Soffíu Eydísi Björgvinsdóttur, sem aðalmann í kjörstjórn í stað Þóru Margrétar Hjaltested, sem beðist hefur lausnar.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2005340

06

Kosning fulltrúa í undirkjörstjórnir.

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi aðila í undirkjörstjórn vegna kjörs forseta Íslands laugardaginn 27. júní nk.

Anna Lena Halldórsdóttir, Hallakri 2b, Anna Kristmundsdóttir Asparholti 1, Anna Margrét Halldórsdóttir, Kríunesi 14, Anna R. Möller, Strandvegi 12, Auður Björgvinsdóttir, Hrísmóum 9, Ásgeir Örn Sigurpálsson, Skógarhæð 6, Brynhildur Þórðardóttir, Vinastræti 12, Dóra Viðarsdóttir, Seinakri 1, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Dröfn Ágústsdóttir, Lyngmóum 7, Elena Einisdóttir, Hraunhólum 11, Elín Guðný Gunnarsdóttir, Norðurbrú 6, Fanney Óskarsdóttir, Steinási 4, Guðfinna Dröfn Aradóttir, Hólmatúni 8, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Strandvegur 10, Guðríður Eyvindardóttir, Hólmatúni 43, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Lindarflöt 50, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Hagaflöt 4, Gunnsteinn Geirsson, Hagaflöt 4, Gylfi Bragi Guðlaugsson, Holtsvegi 8, Halla Þórisdóttir, Heiðarlundi 21, Haukur Steinn Helgason, Engimýri 6, Helga G. Sigurðardóttir, Bæjargili 29, Helga Sif Helgadóttir, Holtsvegi 8, Herdís Jónsdóttir, Hæðarbyggð 5, Herdís Sigurbergsdóttir, Línakri 3, Hildur Katla Guðmundsdóttir, Vesturtúni 18, Hilmar Kristjánsson, Kjarrmóum 10, Hjördís Jóna Gísladóttir, Hólmatúni 31, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Íris Rut Sigurbergsdóttir, Móaflöt 7, Katrín Halldórsdóttir, Einilundi 7, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Kristín Einarsdóttir, Holtsvegi 23-25, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Margrét Sæmundsdóttir, Brekkubyggð 33, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Ríkey Jóna Eiríksdóttir, Hrísmóum 6, Sara Þrastardóttir, Smáraflöt 39, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, Bæjargili 126, Sigríður Dís Guðjónsdóttir, Löngulínu 19, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Arnarási 9, Sigrún Helga Pétursdóttir, Löngumýri 59, Skarphéðinn Jónsson, Strandvegi 10, Svandís Ríkharðsdóttir, Móaflöt 49, Sæunn Eiríksdóttir Strandvegi 26, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Þorgerður Kristinsdóttir, Vesturtúni 42.

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi aðila í hverfiskjörstjórn Álftaness vegna kjörs forseta Íslands laugardaginn 27. júní nk.

Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 50, Guðrún Jónsdóttir, Hrísmóum 5, Andrés Sigurðsson, Hólmatúni 31.


Málsnúmer 2006025

07

Kosning fulltrúa í fastanefndir.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á skipun fastanefnda:

Harpa Þorsteinsdóttir tekur sæti aðalfulltrúa í fjölskylduráði í stað Guðfinnu Eyrúnar Ingjaldsdóttur.

Árni Björn Kristjánsson, tekur sæti varafulltrúa í fjölskylduráði í stað Hörpu Þorsteinsdóttur, sem verður aðalfulltrúi.

Guðjón Pétur Lýðsson tekur sæti aðalfulltrúa í íþrótta- og tómstundaráði í stað Hannesar Inga Geirssonar.

Hannes Ingi Geirsson, tekur sæti varafulltrúa í íþrótta- og tómstundaráði í stað Hörpu Þorsteinsdóttur.

Ingvar Arnarson, tekur sæti varafulltrúa í skipulagsnefnd í stað Gunnars Hólmsteins Ársælssonar.

Valborg Ösp Á Warén tekur sæti varafulltrúa í menningar- og safnanefnd í stað Söru Daggar Svanhildardóttur.

Emil Harðarson, tekur sæti varafulltrúa í skólanefnd í stað Valborgar Aspar Á Warén.

Málsnúmer 2005010F

08

Fundargerð bæjarráðs frá 12/5 ´20.

Ingvar Arnarsson, ræddi 8. tl., erindi Myndstefs varðandi meint brot á sæmdarrétti höfundar, 10. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi úthlutun úr endurmenntunarsjóði grunnskóla og 12. tl., tillögu Garðabæjarlistans um verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk.

Gunnar Einarsson, ræddi 8. tl., erindi Myndstefs varðandi meint brot á sæmdarrétti höfundar.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2005020F

09

Fundargerð bæjarráðs frá 19/5 ´20.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu starfshóps um stafræna framþróun og þjónustu Garðabæjar.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu starfshóps um stafræna framþróun og þjónustu Garðabæjar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., bréf Strætó bs. varðandi drög að nýrri gjaldskrárstefnu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., kynningu starfshóps um stafræna framþróun og þjónustu Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 17. tl., bréf Brynju hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag og 18. tl., stefnu Magna lögmanna varðandi kröfu um bætur vegna tjóns af völdum galla í fasteign.

Almar Guðmundsson, ræddi 17. tl., bréf Brynju hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag og 18. tl., stefnu Magna lögmanna varðandi kröfu um bætur vegna tjóns af völdum galla í fasteign.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2005030F

10

Fundargerð bæjarráðs frá 26/5 ´20.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., minnisblað SSH um greiðslur til sjálfstætt starfandi skóla.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., minnisblað SSH um greiðslur til sjálfstætt starfandi skóla.

Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2005043F

11

Fundargerð bæjarráðs frá 2/6 ´20.

Björg Fenger, ræddi 20. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um ráðstöfun 19. júní sjóðs.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. ? 17. tl. afgreiðslur mála skipulagsnefndar og hrósaði skipulagsnefnd fyrir góð störf við útfærslu skipulagsáætlana.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. ? 17. tl. afgreiðslur mála skipulagsnefndar og gerði nánari grein fyrir einstaka málum.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 20. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um ráðstöfun 19. júní sjóðs. Áslaug Hulda spurði um skipulag hátíðarhalda á 17. júní. Þá ræddi Áslaug Hulda 19. tl., ársskýrslu Hönnunarsafns Íslands.

Gunnar Einarsson, ræddi skipulag hátíðarhalda á 17. júní og sagði frá hugmyndum sem ræddar hafa verið meðal sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., viðauka 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., viðauka 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020. Gunnar upplýsti um fjölda umsókna um sumarstörf sem eru rúmlega 600 og þá eru umsóknir í vinnuskólann einnig rúmlega 600.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2005009F

12

Fundargerð leikskólanefndar frá 27/5 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2005013F

13

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 14/5 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., val á bæjarlistamanni Garðabæjar, 4. tl., menningaruppskeruhátíð og 5. tl. menningarviðburði sumarið 2020.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2005019F

14

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19/5 ´20.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar, 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019, 5. og 6. tl., áhrif Covid á starfsemi íþróttafélaga og 7. tl., áhrif Covid19 á starfsemi íþróttahúsanna

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 5. og 6. tl., áhrif Covid19 á starfsemi íþróttafélaga og 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Ingvar Arnarson, ræddi samantekt um hvatapeninga 2019.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Björg Fenger, ræddi að nýju 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Harpa Þorsteinsdóttir, 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., samantekt um hvatapeninga 2019.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2005007F

15

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 12/5 ´20.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., áhrif Covid19 á starf grunnskólanna í Garðabæ, 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla., 3.tl. ráðningar í stöður skólastjóra Garðaskóla, Sjálandsskóla, Flataskóla og ráðningu í starf grunnskólafulltrúa. Sigríður Hulda þakkaði þeim sem eru nú frá að hverfa fyrir þeirra góðu störf fyrir bæjarfélagið og bauð nýtt fólk velkomið til starfa.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., áhrif Covid19 á starf grunnskólanna í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2005038F

16

Fundargerð skipulagsnefndar frá 28/5 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001426

17

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/5 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

18

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 18/5 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu framkvæmdastjóra og yfirlit fjármála, 2. tl., kvartanir frá Mosfellsbæ vegna lyktarmengunar, 3. tl. svæðisáætlanir, 4. tl., fjárhagslega endurskipulagningu, 5. tl. stöðu hagræðingaaðgerða og 7. tl., vígslu gas- og jarðgerðarstöðvar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi almennt um flokkun sorps og hagræna hvata því samhliða.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., fjárhagslega endurskipulagningu og spurði hvort hugsanlega komi til hækkunar á framlögum sveitarfélaganna.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., fjárhagslega endurskipulagningu og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001425

19

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 30/4 og 8/5 ´20.

Björg Fenger, ræddi 1. tl. fg. 8/5, stöðumat vegna áhrifa Covid19, 2. tl. fg. 8/5, árshlutauppgjör, 3. tl., greiðslukerfið, 4. tl. fg. 8/5, eigendastefnu Strætó og 7. tl. fg. 8/5, gjaldskrárstefnu Strætó.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2003480

20

Fundargerð 23. eigendafundar Strætó bs. frá 25/5 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001161

21

Fundargerðir stjórnar SSH frá 27/4, 4/5 og 18/5 ´20.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2001493

22

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 8/5 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1907114

23

Gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og lýsti ánægju með framkomna gjaldskrá.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara.

Málsnúmer 1904109

24

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Lántaka.

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 600.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,5% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 600.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til byggingar grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingar við grunnskóla á Álftanesi og byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

"Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 600.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun með viðaukum fyrir árið 2020.

Málsnúmer 2006021

25

Tillaga Garðabæjarlistans um bætt öryggi fyrir gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarendur.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að fara í úrbætur á fjölförnustu leiðum sveitarfélagsins til að auka öryggi gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda. Útivist á göngu- og hjólastígum er í aukningu sem er jákvæð þróun sem ber að styðja.“

Greinargerð

Að tryggja umferðaröryggi gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda er sennilega aldrei mikilvægara en nú. Að undanförnu hefur sala reiðhjóla sem og rafhlaupahjóla stóraukist. Enn fleiri nýta hjólreiðar sem sinn aðal samgöngumáta. Því þyngist álag á göngu- og hjólreiðastígum sem og vegum almennt. Því er mikilvægt að tryggja fyllsta öryggis, ganga úr skugga um að merkingar séu á stígum með áberandi hætti og aðgreina stíga eins og kostur er.

Garðabæjarlistinn leggur til að í almennum framkvæmdum á stígum verði sett í forgang að tryggja öryggi í undirgöngum undir Hafnarfjarðarvegi með uppsetningu spegla. Þessi leið er með einn þyngsta álagspunkt þar sem hjólreiða, hlaupa- og göngufólk fer um.

Leiðir eins og hin svo kallaða flóttamannaleið er fjölfarin hjólreiðaleið en þarfnast mikillar lagfæringar til að standa undir öryggi þeirra sem þar fara um.

Farið verði í viðgerðir á Elliðavatnsvegi. Annars vegar flóttamannaleiðin sem tilheyrir Garðabæ og hins vegar Vatnsendavegi

Hér er um vinsælar og fjölfarnar leiðir sem hjólreiðafólk nýtir sér. Vegurinn er illa farinn þar sem hann er mjög holóttur, hæðóttur og með sprungum á köflum sem eykur hættu á slysum til muna.

Eins og okkur er öllum kunnugt um þá hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í samstarfi við Vegagerðina skilgreint lykilleiðir hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu. Lykilleiðirnar sem einnig eru kallaðar stofnleiðir, aðalleiðir eða hraðleiðir hafa það markmið að fjölga hjólreiðafólki og bæta þjónustu við hjólreiðafólk með sópun á sumrin og snjómokstri og hálkuvörn að vetri til. Lykilleiðir hjólreiða eru táknaðar með litum og eru merktar með hjólavegvísum til að hjálpa hjólreiðafólki, íbúum og gestum að velja góða stíga á ferð sinni um höfuðborgina (Reykjavíkurborg, 2018a).

Vakin er sérstök athygli á því að Elliðavatnsvegur er stofnstígur samkvæmt aðalskipulagi Garðabæjar og á að vera malbikaður og grænn stígur þ.e. samfelldur göngu- og hjólastígur sem liggur eftir græna treflinum sem tengir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu saman.

Ennfremur leggjum við til að umferðaröryggi gangandi og hjólandi verði bætt yfir gatnamótin við Urriðaholt og yfir Reykjanesbrautina þar fara börn og ungmenni daglega um til að sækja m.a. æfingar og aðra ástundun og eykst umferð barna og ungmenna sérstaklega yfir sumartímann.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu. Sigurður lagði til að tillögunni verði hafnað og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Verkfræðistofunni Eflu hefur verið falið það verkefni að leggja fram umferðaöryggisáætlun fyrir vegfarendur í Garðabæ þar sem fram kemur ástand vegleiða, framkvæmdarplan og forgangsröðun. Þetta á fulltrúum minnihlutans að vera kunnugt um samanber kynningu í skipulagsnefnd 12. desember sl. Jafnframt er samvinna við Vegagerðina um stofnstígaframkvæmdir með stoð í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem undirritaður var á síðastliðnu ári.

Í tillögu minnihlutans er lagt til að tækni- og umhverfissviði verði falið að fara í úrbætur á fjölförnustu leiðum samfélagsins. Þessi tillaga er úr öllu samhengi við það plan sem unnið er eftir og á sér stoð í fjárhagsáætlun árið 2020. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 er jafnframt gerð þriggja ára áætlun sem mun þá m.a. byggjast á framangreindri öryggisáætlun og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.“

Tillagan er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 2006022

26

Tillaga Garðabæjarlistans um endurskoðun fjölda fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða sem bærinn á aðild að.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóð og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að taka til endurskoðunar fjölda fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða sem skipaðar eru af bæjarstjórn. Skipaður verði starfshópur með sviðsstjórum og fulltrúum minni- og meirihluta. Starfshópnum er falið að skila af sér endurmati og niðurstöðu í desember 2020. Nefndin starfi frá 1. ágúst - 31. nóvember 2020.?

Greinargerð

Við í Garðabæjarlistanum tölum fyrir gangsærri og skilvirkari í stjórnsýslu með það að markmiði að einfalda alla stjórnsýslu eins og kostur er en ekki síður til þess að styrkja vinnu nefnda og ráða. Endurskoðun þessi er til þess fallin að rýna samræmingarmöguleika þvert á málaflokka og sviða stjórnsýslunnar. En ein af tillögum úttektar Haraldar var meðal annars að rýna samvinnu þvert á svið í ákveðnum málaflokkum líkt og innan fjölskyldu og fræðslusviðs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu. Áslaug Hulda lagði til að tillögunni verði hafnað og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í upphafi núverandi kjörtímabils voru gerðar breytingar á nefndarskipan Garðabæjar þar sem nefndum var fækkað, verkefni forvarnarnefndar voru færð til íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs. Nefnd um málefni eldri borgara var jafnframt lögð niður og verkefni hennar færð yfir til fjölskylduráðs, íþrótta- og tómstundaráðs og öldungaráðs sem er nýtt ráð stofnað samkvæmt lögum. Þá var samráðshópur um málefni fatlaðs fólks stofnaður í upphafi kjörtímabils, einnig samkvæmt lögum.

Á árinu 2019 vann Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur úttekt á stjórnsýslu Garðabæjar með það að markmiði að koma fram með tillögur að aukinni skilvirkni og hagræðingu í stjórnsýslu Garðabæjar. Unnið er eftir þessum tillögum og margar þeirra eru nú þegar komnar í framkvæmd. Í ljósi þess að einungis tvö ár eru síðan nefndarskipan var breytt og unnið er að frekar breytingum sem lagðar voru til í skýrslu Haraldar á síðasta ári, hafnar meirihluti bæjarstjórnar þessari tillögu Garðabæjarlistans enda er hún í raun samantekt á verkefnum sem nú þegar eru komin í farveg“.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Tillagan er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 2006024

27

Tillaga um hækkun hvatapeninga.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að hækka hvatapeninga úr 50.000 í 90.000 á barn, á aldrinum 5-18 ára.

Í fjárhagsáætlun 2020 er gert ráð fyrir 132 milljónum í hvatapeninga og má því gera ráð fyrir að sú tala yrði 235 milljónir fyrir árið 2021.“

Greinagerð

Kostnaður við þátttöku barna í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Á þessum tímum þar sem tekjur heimila hafa að jafnaði lækkað er líklegt að börn dragi úr þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi er mikilvægt að Garðabær standi við bakið á barnafjölskyldum með hækkun hvatapeninga. Mikilvægt er að koma til móts við barnafjölskyldur og gefa börnum kost á að stunda íþrótta- og æskulýðsstarf og hvetja þau til þátttöku.

Einnig er mikilvægt að tryggja að rekstur þeirra félaga sem bjóða upp á skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf verði áfram tryggur og með hækkun hvatapeninga er líklegar að börn og ungmenni í Garðabæ muni nota þá þjónustu sem þessi félög eru að bjóða upp á og þannig er Garðabær að styðja en frekar við rekstur þeirra félaga.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Rétt er að geta þess að hvatapeningar hafa hækkað frá árinu 2012 úr kr. 25.000 í kr. 50.000 eða sem nemur kr. 20.000 umfram vísitölu. Þá greiðir Garðabær öllum börnum og unglingum á aldrinum 5-18 ára hvatapeninga sem samsvarar greiðslum í 14 ár með hverju barni. Ekkert annað sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu greiðir hvatapeninga yfir lengra tímabil en gert er hér í Garðabæ. Jafnframt má benda á að í samanburði við nágrannasveitarfélögin er Garðabær að greiða eina af hæstu fjárhæð með hverju barni en einungis eitt sveitarfélag greiðir hærri fjárhæð en mismunurinn er aðeins kr. 4.000. Á fundi ÍTG 19. maí sl. var lögð fram ítarleg tölfræði með hvaða hætti hvatapeningar í Garðabæ hafa verið nýttir sl. 6 ár.

Á fundi bæjarstjórnar 7. maí sl. var samþykkt tillaga þess efnis að hópur sérfræðinga tæki saman upplýsingar um stöðu einstaklinga og fjölskyldna til að undirbyggja undir frekari aðgerðir til stuðnings þeim sem mest þurfa á að halda. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér niðurstöðum í sumarlok.

Á sama tíma og tekjutap og kostnaðarauki hjá Garðabæ á sér stað vegna áhrifa Covid19 skýtur það skökku við að Garðabæjarlistinn leggja til 100 milljóna kr. viðbótarútgjöld án tillögu um með hvaða hætti þeim kostnaði skuli mætt og áður en framangreind greining hefur átt sér stað.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til nánar skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.