Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um endurskoðun fjölda fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða sem bærinn á aðild að.

Málsnúmer 2006022

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (868). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóð og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að taka til endurskoðunar fjölda fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða sem skipaðar eru af bæjarstjórn. Skipaður verði starfshópur með sviðsstjórum og fulltrúum minni- og meirihluta. Starfshópnum er falið að skila af sér endurmati og niðurstöðu í desember 2020. Nefndin starfi frá 1. ágúst - 31. nóvember 2020.?

Greinargerð
Við í Garðabæjarlistanum tölum fyrir gangsærri og skilvirkari í stjórnsýslu með það að markmiði að einfalda alla stjórnsýslu eins og kostur er en ekki síður til þess að styrkja vinnu nefnda og ráða. Endurskoðun þessi er til þess fallin að rýna samræmingarmöguleika þvert á málaflokka og sviða stjórnsýslunnar. En ein af tillögum úttektar Haraldar var meðal annars að rýna samvinnu þvert á svið í ákveðnum málaflokkum líkt og innan fjölskyldu og fræðslusviðs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu. Áslaug Hulda lagði til að tillögunni verði hafnað og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í upphafi núverandi kjörtímabils voru gerðar breytingar á nefndarskipan Garðabæjar þar sem nefndum var fækkað, verkefni forvarnarnefndar voru færð til íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs. Nefnd um málefni eldri borgara var jafnframt lögð niður og verkefni hennar færð yfir til fjölskylduráðs, íþrótta- og tómstundaráðs og öldungaráðs sem er nýtt ráð stofnað samkvæmt lögum. Þá var samráðshópur um málefni fatlaðs fólks stofnaður í upphafi kjörtímabils, einnig samkvæmt lögum.
Á árinu 2019 vann Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur úttekt á stjórnsýslu Garðabæjar með það að markmiði að koma fram með tillögur að aukinni skilvirkni og hagræðingu í stjórnsýslu Garðabæjar. Unnið er eftir þessum tillögum og margar þeirra eru nú þegar komnar í framkvæmd. Í ljósi þess að einungis tvö ár eru síðan nefndarskipan var breytt og unnið er að frekar breytingum sem lagðar voru til í skýrslu Haraldar á síðasta ári, hafnar meirihluti bæjarstjórnar þessari tillögu Garðabæjarlistans enda er hún í raun samantekt á verkefnum sem nú þegar eru komin í farveg“.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Tillagan er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).