Fundargerð bæjarráðs frá 2/6 ´20.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (868). fundur
Björg Fenger, ræddi 20. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um ráðstöfun 19. júní sjóðs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. ? 17. tl. afgreiðslur mála skipulagsnefndar og hrósaði skipulagsnefnd fyrir góð störf við útfærslu skipulagsáætlana.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. ? 17. tl. afgreiðslur mála skipulagsnefndar og gerði nánari grein fyrir einstaka málum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 20. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um ráðstöfun 19. júní sjóðs. Áslaug Hulda spurði um skipulag hátíðarhalda á 17. júní. Þá ræddi Áslaug Hulda 19. tl., ársskýrslu Hönnunarsafns Íslands.
Gunnar Einarsson, ræddi skipulag hátíðarhalda á 17. júní og sagði frá hugmyndum sem ræddar hafa verið meðal sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., viðauka 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., viðauka 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020. Gunnar upplýsti um fjölda umsókna um sumarstörf sem eru rúmlega 600 og þá eru umsóknir í vinnuskólann einnig rúmlega 600.
Afgreiðsla mála.