Beint í efni

Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.

Málsnúmer 2005133

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (868). fundur

Tillaga kom fram um Sigurð Guðmundsson og Ingvar Arnarson í embætti forseta bæjarstjórnar til eins árs. Átta bæjarfulltrúar (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) greiddu Sigurði atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Sigurður Guðmundsson, telst því rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

Sigurður Guðmundsson þakkaði bæjarfulltrúum traustið.

Tillaga kom fram um Björgu Fenger og Ingvar Arnarson sem fyrsta varaforseta til eins árs. Átta bæjarfulltrúar (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) greiddu Björgu atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Björg Fenger, telst því rétt kjörin fyrsti varaforseti bæjarstjórnar.

Tillaga kom fram um Almar Guðmundsson, sem 2. varaforseta til eins árs. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE). Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).