Tillaga um hækkun hvatapeninga.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
20. fundur
Garðabæjarlistinn leggur til hækkun hvatapeninga úr 50.000 í 90.000
Málið var kynnt og rætt. Bæjarstjórn hefur vísað málinu til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
9. (868). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að hækka hvatapeninga úr 50.000 í 90.000 á barn, á aldrinum 5-18 ára.
Í fjárhagsáætlun 2020 er gert ráð fyrir 132 milljónum í hvatapeninga og má því gera ráð fyrir að sú tala yrði 235 milljónir fyrir árið 2021.“
Greinagerð
Kostnaður við þátttöku barna í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Á þessum tímum þar sem tekjur heimila hafa að jafnaði lækkað er líklegt að börn dragi úr þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi er mikilvægt að Garðabær standi við bakið á barnafjölskyldum með hækkun hvatapeninga. Mikilvægt er að koma til móts við barnafjölskyldur og gefa börnum kost á að stunda íþrótta- og æskulýðsstarf og hvetja þau til þátttöku.
Einnig er mikilvægt að tryggja að rekstur þeirra félaga sem bjóða upp á skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf verði áfram tryggur og með hækkun hvatapeninga er líklegar að börn og ungmenni í Garðabæ muni nota þá þjónustu sem þessi félög eru að bjóða upp á og þannig er Garðabær að styðja en frekar við rekstur þeirra félaga.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Rétt er að geta þess að hvatapeningar hafa hækkað frá árinu 2012 úr kr. 25.000 í kr. 50.000 eða sem nemur kr. 20.000 umfram vísitölu. Þá greiðir Garðabær öllum börnum og unglingum á aldrinum 5-18 ára hvatapeninga sem samsvarar greiðslum í 14 ár með hverju barni. Ekkert annað sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu greiðir hvatapeninga yfir lengra tímabil en gert er hér í Garðabæ. Jafnframt má benda á að í samanburði við nágrannasveitarfélögin er Garðabær að greiða eina af hæstu fjárhæð með hverju barni en einungis eitt sveitarfélag greiðir hærri fjárhæð en mismunurinn er aðeins kr. 4.000. Á fundi ÍTG 19. maí sl. var lögð fram ítarleg tölfræði með hvaða hætti hvatapeningar í Garðabæ hafa verið nýttir sl. 6 ár.
Á fundi bæjarstjórnar 7. maí sl. var samþykkt tillaga þess efnis að hópur sérfræðinga tæki saman upplýsingar um stöðu einstaklinga og fjölskyldna til að undirbyggja undir frekari aðgerðir til stuðnings þeim sem mest þurfa á að halda. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér niðurstöðum í sumarlok.
Á sama tíma og tekjutap og kostnaðarauki hjá Garðabæ á sér stað vegna áhrifa Covid19 skýtur það skökku við að Garðabæjarlistinn leggja til 100 milljóna kr. viðbótarútgjöld án tillögu um með hvaða hætti þeim kostnaði skuli mætt og áður en framangreind greining hefur átt sér stað.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til nánar skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.