20. fundur
20. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
05.06.2020
Kl. 14:30 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Ása Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri Stjörnunnar mætti í upphafi fundar til að segja frá starfinu og viðbrögðum félagsins í og eftir Covid 19.
Dagskrá
Málsnúmer 2006077
01
Kvennahlaup ÍSÍ 2020
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn í ár. Að venju verður hlaupið í Garðabæ og hefst það kl. 11:00 laugardaginn 13. júní. Framkvæmdin er í höndum handknattleiksdeildar Stjörnunnar þetta árið.
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn í ár. Að venju verður hlaupið í Garðabæ og hefst það kl. 11:00 laugardaginn 13. júní. Framkvæmdin er í höndum handknattleiksdeildar Stjörnunnar þetta árið.ÍTG fagnar því að kvennahlaup ÍSÍ verði haldið eftir þá óvissu sem verið hefur undanfarið vegna samkomutakmarkana.
Málsnúmer 2005165
02
Ársreikningur 19. júní sjóðs 2019
Úthlutun úr 19. júnísjóði verður frestað til hausts 2020
Bæjarstjórn hefur samþykkt breytingar sem ÍTG lagði til á 19. júní sjóðnum. Unnið verður að nýjum úthlutunarreglum og í framhaldinu auglýst eftir umsóknum.
Málsnúmer 2006079
03
Dagskrá 17. júní 2020
Drög að dagskrá 17. júní taka mið af fjöldatakmörkunum og óvissu á fordæmalausum tímum Covid 19. Unnið er út frá því að dreifa fólki fremur en að safna því saman. Opið verður í sundlaugarnar frá 10:00 til 16:00 og í Hönnunarsafn Íslands 11:00-17:00
Drög að dagskrá kynnt. Vegna fjöldatakmarkana verða engar samkomur auglýstar en Garðbæingar hvattir til að njóta samveru með vinum og fjölskyldu. Opið verður í sundlaugar og söfn.
Málsnúmer 2006023
04
Forvarnavika Garðabæjar 2020
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14. október 2020. Unnið er að yfirskrift forvarnavikunnar í samvinnu við ungmennaráð bæjarins. Í dagskrá er stefnt að því að höfða til allra hópa samfélagsins en áhersla verði á unglinga og ungmenni.
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14. október 2020. Unnið er að yfirskrift forvarnavikunnar í samvinnu við ungmennaráð bæjarins. Í dagskrá forvarnavikunnar verður stefnt að því að höfða til allra hópa samfélagsins en áhersla verði á unglinga og ungmenni.
Málsnúmer 2005447
05
Bygging stúku við gervigrasvöll á Álftanesi.
UMFÁ hefur óskað eftir leyfi til að hefja undirbúning byggingar stúkusæta fyrir 200 manns við gervigrasvöllinn á Álftanesi.
UMFÁ hefur óskað eftir leyfi til að hefja undirbúning byggingar stúkusæta fyrir 200 manns við gervigrasvöllinn á Álftanesi. ÍTG lítur jákvætt á málið.
Málsnúmer 2006024
06
Tillaga um hækkun hvatapeninga.
Garðabæjarlistinn leggur til hækkun hvatapeninga úr 50.000 í 90.000
Málið var kynnt og rætt. Bæjarstjórn hefur vísað málinu til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Fylgiskjöl
a) Rætt var um utanvegahlaup og viðburði annarra en félagasamtaka og leyfisveitingar vegna þeirra.
b) Guðjón Pétur Lýðsson mun taka sæti í ÍTG næsta vetur fyrir Garðabæjarlistann í stað Hannesar Inga.