Ársreikningur 19. júní sjóðs 2019
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
20. fundur
Úthlutun úr 19. júnísjóði verður frestað til hausts 2020
Bæjarstjórn hefur samþykkt breytingar sem ÍTG lagði til á 19. júní sjóðnum. Unnið verður að nýjum úthlutunarreglum og í framhaldinu auglýst eftir umsóknum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
9. (868). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um niðurlagningu 19. júní sjóðs og ráðstöfun sjóðsinneignar. (Mál nr. 2005165)
„Lagt er til að 19. júní sjóður verði lagður niður og allt fé sjóðsins, sem nam í árslok 2019 kr. 24.895.251, renni til bæjarsjóðs. Samhliða því er tillaga um að kr. 4.000.000 verði úthlutað bæði á árinu 2020 og 2021 til að efla og styrkja íþróttir og líkams- og heilsurækt kvenna. Frá árinu 2022 verði svo kr. 2.000.000 úthlutað á ári til sama málefnis þar til fjármunum sjóðsins er að fullu úthlutað.“
Bæjarráð Garðabæjar
04
21. (1929). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um niðurlagningu 19. júní sjóðs og ráðstöfun sjóðsinneignar.
„Lagt er til að 19. júní sjóður verði lagður niður og allt fé sjóðsins, sem nam í árslok 2019 kr. 24.895.251, renni til bæjarsjóðs. Samhliða því er tillaga um að kr. 4.000.000 verði úthlutað bæði á árinu 2020 og 2021 til að efla og styrkja íþróttir og líkams- og heilsurækt kvenna. Frá árinu 2022 verði svo kr. 2.000.000 úthlutað á ári til sama málefnis þar til fjármunum sjóðsins er að fullu úthlutað.“
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
19. fundur
Undirritun Ársreiknings.
Tillaga formanns að breytingum á sjóðnum tekin fyrir.
Reikningur 19.júnísjóðs Garðabæjar 2019 var samþykktur og undirritaður.
Tillaga um breytingar á sjóðnum var samþykkt og formanni falið að leggja hana fyrir bæjarstjórn.
Lagt er til að 19. júní sjóðurinn verði lagður niður og fé sjóðsins renni til bæjarsjóðs þar sem leitast skal við að verja fénu til uppbyggingar á íþróttum kvenna eins og fram kemur í skipulagsskrá sjóðsins. ÍTG verði áfram falið að sjá um úthlutun fjármagnsins en tillagan hljóðar á um að kr. 4.000.000 verði úthlutað bæði á árinu 2020 og 2021 til að efla og styrkja íþróttir og líkams- og heilsurækt kvenna. Frá árinu 2022 verði svo kr. 2.000.000 úthlutað á ári til sama málefnis. Ætti fjárhæðin sem til er í sjóðnum þá að duga í 10 ár eða til 2030.