19. fundur
19. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
19.05.2020
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2005165
01
Uppgjör 19. júnísjóðs 2019
Undirritun Ársreiknings.
Tillaga formanns að breytingum á sjóðnum tekin fyrir.
Reikningur 19.júnísjóðs Garðabæjar 2019 var samþykktur og undirritaður.
Tillaga um breytingar á sjóðnum var samþykkt og formanni falið að leggja hana fyrir bæjarstjórn.
Lagt er til að 19. júní sjóðurinn verði lagður niður og fé sjóðsins renni til bæjarsjóðs þar sem leitast skal við að verja fénu til uppbyggingar á íþróttum kvenna eins og fram kemur í skipulagsskrá sjóðsins. ÍTG verði áfram falið að sjá um úthlutun fjármagnsins en tillagan hljóðar á um að kr. 4.000.000 verði úthlutað bæði á árinu 2020 og 2021 til að efla og styrkja íþróttir og líkams- og heilsurækt kvenna. Frá árinu 2022 verði svo kr. 2.000.000 úthlutað á ári til sama málefnis. Ætti fjárhæðin sem til er í sjóðnum þá að duga í 10 ár eða til 2030.
Málsnúmer 2003120
02
Þingsályktun um forvarnastefnu,
Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 ? 2025.
ÍTG fagnar fram kominni þingsályktun um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 til 2025.
ÍTG styður aukna fræðslu á þessu sviði og leggur áherslu á að hún nái til allra aldurshópa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1908321
03
Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Forvarnarstefna tilbúin til kynningar í öðrum nefndum bæjarins.
Drög að forvarnarstefnu Garðabæjar verður á næstunni send til kynningar í nefndum bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004371
04
Hvatapeningar 2019 - samantekt
Samantekt á nýtingu hvatapeninga 2019 og yfirlit síðustu 6 ára með tilliti til þróunar á nýtingu þeirra.
Samantekt íþróttafulltrúa vegna hvatapeninga 2019 ásamt yfirliti síðustu 6 ára hjá hverjum aldurshópi og hverjum árgangi var lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004226
05
Áhrif Covid 19 á rekstur íþróttafélaga í Garðabæ
Ljóst er að mörg félög hafa orðið fyrir tekjumissi af viðburðum sem fallið hafa niður. Skipulögðu starfi var haldið uppi með rafrænum samskiptum en einnig hefur tímabil æfinga verið lengt í einhverjum tilfellum til að koma til móts við greidd æfingagjöld. Nú er allt barna- og unglingastarf komið aftur í gang og rýmkun fjöldatakmarkana á starfi eldri flokka taka gildi frá 25. maí.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004031
06
Íþróttahreyfingin og COVID-19
Garðabær hefur horft til þess að flýta greiðslum gildandi samninga innan ársins hafi félögin óskað eftir því vegna lausafjárvanda. Endanleg áhrif á tekjur og gjöld félaga eru ekki komin fram að fullu.
Málsnúmer 2003215
07
Covid 19 aðgerðir í íþróttamiðstöðvum
Upplýsingar um aðgerðir sem gripið hefur verið til og hvernig tilhögun verður við opnun sundlauga fyrir almenning.
Íþróttamiðstöðvum bæjarins var lokað 23.maí sl. að kröfu sóttvarnaryfirvalda. Starfsemi skóla með nýtingu sundlauga og íþróttaaðstöðu hófst að nýju 4. maí. Á sama tíma gátu íþróttafélög hafið barnastarfið. Takmarkanir hafa verið á fjölda fullorðinna í sölum og á völlum en bann við komu foreldra er inn í húsin. Aflétting þessara takmarkana hófust 18. maí með opnun almenningssundlauga í Ásgarði og á Álftanesi og stefnt er að opnu heilsuræktina 25. maí. Fylgt er ráðleggingum EL um fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk. Í lokuninni var tíminn nýttur í viðhald húsnæðis og tækja.