Áhrif Covid 19 á rekstur íþróttafélaga í Garðabæ
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
23. fundur
Ný úttekt Stjörnunnar á stöðu skráninga í starfi deilda og útistandandi æfingagjalda.
Umræður um áhrif Covid 19 og þær takmarkanir sem hafa verið á skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og ungmenna og hvort slíkt leiði til brottfalls. Farið var yfir úttekt Stjörnunnar á stöðu skráninga í starfi deilda og útistandandi æfingagjöld.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
19. fundur
Ljóst er að mörg félög hafa orðið fyrir tekjumissi af viðburðum sem fallið hafa niður. Skipulögðu starfi var haldið uppi með rafrænum samskiptum en einnig hefur tímabil æfinga verið lengt í einhverjum tilfellum til að koma til móts við greidd æfingagjöld. Nú er allt barna- og unglingastarf komið aftur í gang og rýmkun fjöldatakmarkana á starfi eldri flokka taka gildi frá 25. maí.