Tillaga Garðabæjarlistans um bætt öryggi fyrir gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarendur.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (868). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að fara í úrbætur á fjölförnustu leiðum sveitarfélagsins til að auka öryggi gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda. Útivist á göngu- og hjólastígum er í aukningu sem er jákvæð þróun sem ber að styðja.“
Greinargerð
Að tryggja umferðaröryggi gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda er sennilega aldrei mikilvægara en nú. Að undanförnu hefur sala reiðhjóla sem og rafhlaupahjóla stóraukist. Enn fleiri nýta hjólreiðar sem sinn aðal samgöngumáta. Því þyngist álag á göngu- og hjólreiðastígum sem og vegum almennt. Því er mikilvægt að tryggja fyllsta öryggis, ganga úr skugga um að merkingar séu á stígum með áberandi hætti og aðgreina stíga eins og kostur er.
Garðabæjarlistinn leggur til að í almennum framkvæmdum á stígum verði sett í forgang að tryggja öryggi í undirgöngum undir Hafnarfjarðarvegi með uppsetningu spegla. Þessi leið er með einn þyngsta álagspunkt þar sem hjólreiða, hlaupa- og göngufólk fer um.
Leiðir eins og hin svo kallaða flóttamannaleið er fjölfarin hjólreiðaleið en þarfnast mikillar lagfæringar til að standa undir öryggi þeirra sem þar fara um.
Farið verði í viðgerðir á Elliðavatnsvegi. Annars vegar flóttamannaleiðin sem tilheyrir Garðabæ og hins vegar Vatnsendavegi
Hér er um vinsælar og fjölfarnar leiðir sem hjólreiðafólk nýtir sér. Vegurinn er illa farinn þar sem hann er mjög holóttur, hæðóttur og með sprungum á köflum sem eykur hættu á slysum til muna.
Eins og okkur er öllum kunnugt um þá hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í samstarfi við Vegagerðina skilgreint lykilleiðir hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu. Lykilleiðirnar sem einnig eru kallaðar stofnleiðir, aðalleiðir eða hraðleiðir hafa það markmið að fjölga hjólreiðafólki og bæta þjónustu við hjólreiðafólk með sópun á sumrin og snjómokstri og hálkuvörn að vetri til. Lykilleiðir hjólreiða eru táknaðar með litum og eru merktar með hjólavegvísum til að hjálpa hjólreiðafólki, íbúum og gestum að velja góða stíga á ferð sinni um höfuðborgina (Reykjavíkurborg, 2018a).
Vakin er sérstök athygli á því að Elliðavatnsvegur er stofnstígur samkvæmt aðalskipulagi Garðabæjar og á að vera malbikaður og grænn stígur þ.e. samfelldur göngu- og hjólastígur sem liggur eftir græna treflinum sem tengir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu saman.
Ennfremur leggjum við til að umferðaröryggi gangandi og hjólandi verði bætt yfir gatnamótin við Urriðaholt og yfir Reykjanesbrautina þar fara börn og ungmenni daglega um til að sækja m.a. æfingar og aðra ástundun og eykst umferð barna og ungmenna sérstaklega yfir sumartímann.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu. Sigurður lagði til að tillögunni verði hafnað og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Verkfræðistofunni Eflu hefur verið falið það verkefni að leggja fram umferðaöryggisáætlun fyrir vegfarendur í Garðabæ þar sem fram kemur ástand vegleiða, framkvæmdarplan og forgangsröðun. Þetta á fulltrúum minnihlutans að vera kunnugt um samanber kynningu í skipulagsnefnd 12. desember sl. Jafnframt er samvinna við Vegagerðina um stofnstígaframkvæmdir með stoð í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem undirritaður var á síðastliðnu ári.
Í tillögu minnihlutans er lagt til að tækni- og umhverfissviði verði falið að fara í úrbætur á fjölförnustu leiðum samfélagsins. Þessi tillaga er úr öllu samhengi við það plan sem unnið er eftir og á sér stoð í fjárhagsáætlun árið 2020. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 er jafnframt gerð þriggja ára áætlun sem mun þá m.a. byggjast á framangreindri öryggisáætlun og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.“
Tillagan er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).