Beint í efni

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Málsnúmer 1903374

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

9. fundur

Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri greindu nýrri skipulagsnefnd frá stöðunni á vinnu við nýtt skipulag sem unnið hefur verið að um árabil fyrir Norðurnes á Álftanesi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

35 (22-26). fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti skipulagsvinnu Norðurness. Umhverfisnefnd ræddi viðmið Vegagerðar varðandi lágmarkshæð byggðar yfir sjávarmáli í tengslum við hækkun sjávarmáls.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs með fresti til 11.febrúar. Almennur kynningarfundur var haldinn í Álftanesskóla þann 14. janúar sem var vel sóttur.

Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis.

Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2.

Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi:
- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.
- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.
- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.
- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb
- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1.
- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.
- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.
- Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns.
- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.
- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til meðferðar hjá nýrri skipulagsnefnd að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Tillagan nær til Norðurness á Álftanesi.

Umhverfissvið mun funda með sérfræðingum Veðurstofunnar á næstu dögum til þess að ræða ákvæði um lágmarkshæðarlegu nýbygginga á Álftanesi sem sett er fram í aðalskipulagi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Norðurness að lokinni forkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

5. fundur

Edda Einarsdóttir arkitekt hjá Arkís kynnti valkosti við útfærslu skipulagstillagna sem mótaðir hafa verið í kjölfar ábendinga sem borist hafa í forkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Tillagan nær til Norðurness á Álftanesi. Lögð fram greinargerð þar sem að ábendingar hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

18. (970). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. desember 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi. Tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurness. Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi: - Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar. - Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út. - Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun. - Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb - Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Eyvindarholt. - Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri. - Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar. - Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan hafnarsvæðis vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu. - Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund í Álftanesskóla á meðan á forkynningu stendur. Tillögu skal forkynna samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi, sem nær til sama svæðis.

Bæjarráð Garðabæjar

10

46. (2194). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. desember 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurness.
Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi:
- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.
- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.
- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.
- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb
- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Eyvindarholt.
- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.
- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.
- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan hafnarsvæðis vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.
- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund í Álftanesskóla á meðan á forkynningu stendur.
Tillögu skal forkynna samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi, sem nær til sama svæðis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

18. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

14. fundur

Lögð fram drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness og er í samræmi við drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Norðurness.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

10. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og samtali Garðabæjar við landeigendur í tengslum við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar og deiliskipulags á Norðurnesi á Álftanesi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

10. fundur

Lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi fór yfir minnisblaðið. Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

9. (868). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á norðurnesi Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. (Mál nr. 1903374)

Bæjarráð Garðabæjar

19

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á norðurnesi Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

6. fundur

Lögð fram tillaga breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundum með landeigendum þar sem drög að tillögu voru rædd.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

21

22. fundur

Skipulagsráðgjafarnir, Þráinn Hauksson og Ómar Ívarsson hjá Landslagi kynntu drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem byggir á tillögu að deiliskipulagi Norðurness.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

22

3. fundur

Skipulagsráðgjafi, Þráinn Hauksson landslagi kynnti drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem byggir á tillögu að deiliskipulagi Norðurness. Drögum vísað til kynningar í umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráði. Drögin skulu kynnt landeigendum á Norðurnesi.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

23

15. fundur

ÍTG fagnar áformum um framtíðarstaðsetningu golfvallar GÁ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

24

17. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi sem kallar á breytingu aðalskipulags. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið með landeigendum, fuglafræðingum og forsetaembættinu. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

25

14. fundur

Lagt fram til kynningar og skóladeild falið að fylgja málinu eftir þannig að tryggt sá að skólahúsnæði sé til staðar, gönguleiðir góðar og öryggi skólabarna tryggt m.a. með tilliti til umferðar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

26

18. fundur

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að umhverfisrask verði sem minnst og að farið verði eftir ábendingum fuglafræðinga um mótvægisaðgerðir vegna golfvallar, þ.e. tjarnir, hólmar og áframhaldandi endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn ásamt því að fyllt verði í skurði á golfvallarsvæðinu. Hugað verði að því að rask milli golfbrauta verði sem minnst ásamt raski á framkvæmdatíma. Umhverfisnefnd telur jákvætt að á Seylunni verði fallið frá aðstöðu fyrir siglingar í tengslum við smábátahöfn og möguleika á aðstöðu fyrir hestamenn.

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

14. (854). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga er tekur til svæðis á norðurnesi Álftaness. Samhliða verður unnið að gerð deiliskipulags fyrir sama svæði.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Bæjarráð Garðabæjar

28

36. (1897). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga er tekur til svæðis á norðurnesi Álftaness. Samhliða verður unnið að gerð deiliskipulags fyrir sama svæði.

Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

29

13. fundur

Lögð fram uppfærð lýsing vegna tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.1213/2010. Tillagan verður unnin samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes. Skipulagasnefnd samþykkir lýsinguna 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal lýsinguna almenningi og senda hana umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

30

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir svæði á Norðurnesi Álftaness, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum ásamt því að kynna lýsinguna fyrir almenningi.

Bæjarráð Garðabæjar

31

16. (1877). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir svæði á Norðurnesi Álftaness, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

32

6. fundur

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi austan Norðurnesvegar frá landi Bessastaða og Akurgerðis.
Drög að deiliskipulagi Álftaness kalla á aðalskipulagsbreytingar, m.a. vegna golfvallarhugmynda.
Skipulagasnefnd samþykkir lýsinguna 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal lýsinguna og senda hana umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun.

Bæjarráð Garðabæjar

33

13. (1874). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

34

4. fundur

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að undirbúa gerð lýsingar fyrir aðalskipulagsbreytingu sem drög að deiliskipulagi Norðurness kalla á.