17. fundur
17. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
12.12.2019
Kl. 08:00 - 10.00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Umferðaröryggisáætlun
Elín Sveinbjörnsdóttir og Berglind Hallgrímsdóttir frá Verkfræðistofunni Eflu kynntu drög að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar sem þær hafa unnið að. Skipulagsnefnd vísar drögunum til kynningar og umfjöllunar á almennum borgarafundi.
02
Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 og þeim breytingum sem gerðar hafa verið á tillögunni í kjölfar forkynningar.
Lagt er til að deiliskipulag Viðskiptastrætis verði fellt úr gildi og nær deiliskipulagstillagan til þess svæðis einnig.
Gert er ráð fyrir 182 íbúðareiningum við 3 botnlangagötur. Lagt er til að heiti gatnanna verði Vörðugata, Grímsgata og Lautargata. Innan deiliskipulagssvæðisins er einnig fjölbýlishúslóðin Urriðaholtsstræti 10-12 sem var hluti af deiliskipulagi Viðskiptastrætis en þar hefur verið gert ráð fyrir 36 íbúðareiningum og helst það óbreytt.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Tillaga kallar á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 3 og Urriðaholts austurhluta vegna afmörkunar deiliskiplagssvæða. Skipulagsnefnd vísar þeim breytingartillögu til auglýsingar og skulu þær auglýstar samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4.
Við gildistöku deiliskipulags Norðurhluta 4 mun deiliskipulag Urriðaholts Viðskiptastrætis falla úr gildi.
03
Urriðaholt - skjólveggir
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta ehf gerði grein fyrir umræðum í samráðsteymi Urriðaholts ehf, deiliskipulagsráðgjafa og Garðabæjar um mótun ákvæða sem tekur betur á gerð skjólveggja á lóðum í Urriðaholti.
Tillaga að breytingum á ákvæðum deiliskipulagsáætlana um skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóð lagðar fram. Tillaga að deiliskipulagi Norðuhluta 4 gerir ráð fyrir ákvæðum sem eru í samræmi við framlagðar breytingartillögur.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010 sem breytingar á eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: Urriðholt vesturhluti, Urriðaholt norðurhluti 1, Urriðaholt norðurhluti 2, Urriðaholt norðurhluti 3 og Urriðaholt austurhluti 1.
04
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi sem kallar á breytingu aðalskipulags. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið með landeigendum, fuglafræðingum og forsetaembættinu. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
05
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi sem kallar á breytingu aðalskipulags. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið með landeigendum, fuglafræðingum og forsetaembættinu. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
06
Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra
Lögð fram tillaga lóðarhafa Hraunhóla 8 sem gerir ráð fyrir skiptingu hennar í tvær einbýlishúsalóðir. Ekki eru lagðar til frekari breytingar á deiliskipulaginu sem er deiliskipulag Hraunsholts eystra.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
07
Víkurgata 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
08
Hraungata 15, 17 og 19. Deiliskipulagsbreyting. Urriðaholt, austurhluti 1.
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.
09
Hraungata 8 (áður 10) - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
10
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Lagt fram.
12
Drög að breytingum á reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.
Lagt fram.
14
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Breyting á aðalskipulagi og deiliskipulagi. Fannborgarreitur og Traðarreitur vestur. Skipulagslýsing
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
15
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12
Lögð fram.