Urriðaholt - skjólveggir
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (859). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, 1., 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 1. áfanga austurhluta Urriðaholts, er varðar skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóðum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
48. (1909). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, 1., 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 1. áfanga austurhluta Urriðaholts, er varðar skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóðum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
17. fundur
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta ehf gerði grein fyrir umræðum í samráðsteymi Urriðaholts ehf, deiliskipulagsráðgjafa og Garðabæjar um mótun ákvæða sem tekur betur á gerð skjólveggja á lóðum í Urriðaholti.
Tillaga að breytingum á ákvæðum deiliskipulagsáætlana um skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóð lagðar fram. Tillaga að deiliskipulagi Norðuhluta 4 gerir ráð fyrir ákvæðum sem eru í samræmi við framlagðar breytingartillögur.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010 sem breytingar á eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: Urriðholt vesturhluti, Urriðaholt norðurhluti 1, Urriðaholt norðurhluti 2, Urriðaholt norðurhluti 3 og Urriðaholt austurhluti 1.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi útfærslur á skjólveggjum sem eru víða að rísa á lóðum í Urriðaholti. Sumir skjólveggjanna eru ekki í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd beinir því til tækni- og umhverfissviðs að koma því á framfæri við húsbyggjendur, húsfélög í Urriðaholti og fasteignasala að mikilvægt sé að útfærsla veggja gangi ekki gegn markmiðum um yfirbragð hverfisins og fylgi gildandi deiliskipulagi. Mælir nefndin með því að gerðar verði skýringarmyndir sem sýni dæmi um útfærslur á skjólveggjum og gróðri sem séu í samræmi við deiliskipulagsáætlanir í Urriðaholti. Þá er lagt til að tækni- og umhverfissvið hafi samband við þá sem byggt hafa skjólveggi sem ekki samræmast deiliskipulaginu.