48. (1909). fundur
48. (1909). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.12.2019
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2019 - viðaukar nr. 10 og nr. 11.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1 -2. Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 10, nr. 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 10 og nr. 11 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki nr. 10.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 var gert ráð fyrir að mæta launahækkunum vegna kjarasamninga með varasjóði. Í tengslum við gerð væntanlegra kjarasamninga við opinbera starfsmenn hefur nú verið gengið frá samkomulagi um eingreiðslur sem eiga að mæta þeim töfum sem orðið hafa á kjarasamningsgerð.
Eftirfarandi kostnaður er vegna eingreiðslna til starfsmanna:
Eingreiðslur - hækkun hjá stofnunum Garðabæjar 83.351.000 ýmsir lyklar
Hjalli grunnskóli 1.719.000 04263-4364
Alþjóðaskólinn 1.824.000 04264-4364
Leikskóladeild Hjalla 630.000 04163-4364
Leikskólinn Ásar 3.019.000 04161-4364
Leikskólinn Hnoðraholt 3.268.000 04168-4364
Litlu Ásar 2.047.000 04165-4364
Leikskólinn Sjáland 4.094.000 04116-4364
Samtals 99.952.000
Samþykkt bæjarráðs á töxtum vegna NPA samninga
NPA samningar - taxtahækkanir 4.600.000 02530-4993
Vegna fjölgunar nemenda var bætt við starfsmönnum á eftirfarandi stofnunum
umfram það sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir til að mæta fjölgun nemenda
Sjálandsskóli 17.000.000 04214-
Urriðaholtsskóli grunnskóladeild 10.000.000 04216-
Urriðaholtsskóli leikskóladeild 14.000.000 04121-
Samtals 41.000.000
Alls aukin launaútgjöld 145.552.000
Kostnaðarauka mætt með lækkun á varasjóði 145.552.000 31916-7179
Viðauki 11.
Samkvæmt samþykkt bæjarráðs frá 10. desember sl. þarf að gera viðauka vegna landakaupa.
Kaup á landspildum Búðarflatar 5.017.000 eignfært
Kostnaðarauka mætt með lækkun á varasajóði -3.203.500 31916-7179
Kostnaðarauka mætt með hækkun á lóðarleigu -1.813.500 00350-0310
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - lántaka.
Fjármálastjóri kynnti tillögu um samþykkt á lántöku á árinu 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.800.000 þkr. samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Urriðaholtsstræti 44-74 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vistbyggð ehf., kt. 590908-0880 leyfi til að byggja 16 raðhús að Urriðaholtsstæti 44-74.
04
Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rasmus Röjkjær, kt. 210466-2829 leyfi til að rífa núverandi hús og byggja nýtt einbýlishús á lóðinni að Haukanesi 24.
05
Hafnarfjarðarv. v. Olís - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Olíuverzlun Íslands ehf., kt. 500269-3249, leyfi til að reisa kalda geymslu við norðurhlið bensínstöðvarhúss við Hafnarfjarðarveg.
06
Holtsvegur 57 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mannvirki ehf., kt. 431014-1060 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 17 íbúðum að Holtsvegi 57.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna skjólveggja.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, 1., 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 1. áfanga austurhluta Urriðaholts, er varðar skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóðum.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholt.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samhliða samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis þar sem gert er ráð fyrir að skipulag verði fellt úr gildi og breytingu á 3. áfanga norðurhluta og austurhluta Urriðaholts vegna nýrrar afmörkunar deiliskipulagssvæða.
09
Bréf Jóns Ragnars Daðasonar varðandi lækkun fasteignagjalda, dags. 13.11.19.
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2019 að fjárhæð kr. 113.620.
10
Bréf Aflsins um styrk árið 2020, dags. 06.12.19.
Bæjarráð vísar erindinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
11
Auglýsing mennta- og menningarmálaráðherra um starfsemi frístundaheimila.
Bæjarráð samþykkir að tómstundaheimili grunnskóla Garðabæjar fái heitið frístundaheimili í samræmi ákvæði 33. gr. a í lögum um grunnskóla þar sem mælt er fyrir um að öllum börnum í yngri árgöngum grunnskóla skuli gefinn kostur á þjónustu frístundaheimila.
12
Svar við fyrirspurn um málefni Tónlistarskóla Garðabæjar.
Lagt fram.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
Fyrir hönd Garðabæjarlistans ítreka ég efni tillögu Garðabæjarlistans sem lögð var fram 6. júní 2019 um framsettan tímaramma á svörum við fyrirspurnum. Í þágu gagnsæis og lýðræðislegra vinnubragða.
Fylgiskjöl
13
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um niðurgreidda leigubílaakstursþjónustu eldri borgara.
Félagsmálastjóri gerði grein fyrir að akstursþjónusta eldri borgara væri ekki lögbundinni þjónusta en hún standi eldri borgurnum í Garðabæ, sem hafa ekki eigið ökutæki og geta ekki notað almenningsvagna, til boða í þeim tilgangi að fara til lækna, sjúkraþjálfun o.fl. Félagsmálastjóri sagði frá vinnu við setningu reglna um akstursþjónustu eldri borgara sem fljótlega verða lagðar til umsagnar hjá öldungaráði og fjölskylduráði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
14
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti á Álftanesi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
15
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir áramótabrennu við Arnarnesvog.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
16
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir áramótabrennu við Gesthús.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
17
Bréf Alþingis varðandi Tillögur til þingsályktunar um samgönguáætlanir, 434. mál og 435. mál., dags. 09.12.19.
Lagt fram.
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum(viðaukar). 436. mál., dags. 09.12.19.
Lagt fram.
19
Aðgerðaráætlun gegn hávaða 2018-2023.
Aðgerðaráætlun gegn hávaða var kynnt á vef Garðabæjar og lá frammi í þjónustuveri tímabilið 30. júlí til 27. ágúst 2019. Níu ábendingar bárust frá íbúum.
Bæjarráð vísar aðgerðaráætlun gegn hávaða 2018 -2023 til afgreiðslu bæjarstjórnar samkvæmt 8. gr. reglugerðar um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005.