Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
48. (1909). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rasmus Röjkjær, kt. 210466-2829 leyfi til að rífa núverandi hús og byggja nýtt einbýlishús á lóðinni að Haukanesi 24.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (852). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Haukanesi 24 þó að byggingarmagn sé umfram hámarks nýtingarhlutfall þar sem um er að ræða 150 fm gluggalaust rými neðanjarðar. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
04
33. (1894). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Haukanesi 24 þó að byggingarmagn sé umfram hámarks nýtingarhlutfall þar sem um er að ræða 150 fm gluggalaust rými neðnajarðar. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að nýrri byggingu á íbúðarhúslóðinni Haukanes 24. Tillagan gerir ráð fyrir byggingu sem er rétt tæplega 800 fermetrar að flatarmáli sem samsvarar nýtingarhlutfalli 0.54 á lóðinni. Deiliskipulag skilgreinir hámarks nýtingarhlutfall 0.45.
Skipulagsnefnd metur um 150 fermetra sem eru gluggalaus rými neðanjarðar sem rými án grenndaráhrifa.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr.43.gr.skipulagslaga hvað umrædda fermetra varðar þar sem um óverulegt frávik frá deiliskipulagi er að ræða á nokkurra grenndaráhrifa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn fyrir nýtt einbýlishús að Haukanesi 24 sem fer umfram heimild deiliskipulags um heildarnýtingarhlutfall.
Tillögu er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda þar sem fram komi hve mikill hluti heildarflatarmáls geti talist rými án grenndaráhrifa og hvort hæð hússins sé í samræmi við ákvæði deiliskipulagsins.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
16. (818). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs og byggingu nýs einbýlishúss að Haukanesi 24 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem byggingarmagni á lóð er mótmælt
Bæjarráð Garðabæjar
08
39. (1805). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs og byggingu nýs einbýlishúss að Haukanesi 24 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem byggingarmagni á lóð er mótmælt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
13. fundur
Málinu frestað þar til að deiliskipulag Arnarness sem nú er í auglysingu hefur tekið gildi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
11. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
10. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem er í grenndarkynningu. Óskað var eftir frekari gögnum vegna tillögunnar og frestur verður framlengdur. Vísað til frekar skoðunar hja tækni og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
12
26. (1792). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs og nýbyggingar við Haukanes 24 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
8. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn af nýju einbýlishúsi að Haukanesi 24 sem reisa skal í stað þess sem fyrir er. Tillögunni vísað til grenndarkynningar þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Arnarnes. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 21, 22,23,25,26 og 28.